Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.06.1975, Qupperneq 3

Skinfaxi - 01.06.1975, Qupperneq 3
Tímarit Ungmennafélags íslands — LXVI. árgangur — 3. hefti 1975. — Ritstjóri Eysteinn Þorvaldsson — Út koma 6 hefti á ári hverju. Stuðningur við áhugamannastarfið Um árabil hefur menn greint talsvert á um það með hverjum hætti væri best borgið í framkvæmd almennri æskulýðsstarfsemi hér á landi, og þá fyrst og fremst hver afskipti op- inberra aðila ættu að vera varðandi fram- kvæmd æskulýðsstarfseminnar. Flestir hafa þó talið rétt að taka þá stefnu að styrkja frjálsa æskulýðsstarfsemi þar sem hún hefur verið til staðar. En til eru þó staðir hérlendis þar sem opinberir aðilar, þ. e. bæjar- og sveitar- félög, hafa beinlínis tekið að sér rekstur æskulýðsstarfseminnar að sjálfsögðu með ærn- um tilkostnaði og misgóðum árangri I stað þess að hvetja áhugamannafélögin til dáða með auknum stuðningi eða leita orsakanna fyrir félagslegri deyfð þeirra og reyna þá að þæta stöðu þeirra með einhverjum hætti. Forráðamenn bæjar- og sveitarfélaga, svo og ríkisins eru í vaxandi mæli að gera sér Ijóst að til þess að nýta sem best það takmarkaða fjármagn sem þjóðin getur varið til þessarar starfsemi, beri að taka upp þá stefnu að styrkja áhugamannastarfið til muna og meira enn gert hefur verið. Hár er ekki um sér islenskt fyrirbæri að ræða, þetta er ríkjandi stefna nú meðal ná- grannaþjóða okkar á Norðurlöndum og í Evrópu. Undirritaður leyfir sér í því sambandi að vitna til tveggja ráðstefna sem hann sat erlendis á þessu vori, þar sem þessi stefna var rækilega kynnt: Ráðstefnu íþróttaleiðtoga i Strassburg, þar sem lögð var fram athyglis- verð stefnumótun ráðherrafundar Evrópuráðs- ins sem haldin var í Brussel 20. til 21. mars s. I. og Birgir Thorlasíus, ráðuneytisstjóri sat fyrir íslands hönd. Hin ráðstefnan var í Osló þar sem saman komu fulltrúar æskulýðsráða Norðurlandanna, og æskulýðsfulltrúar. Ég leyfi mér að vona að stefnuyfirlýsingu þessari verði framfylgt hér á landi, og skiptir þar auðvitað höfuðmáli jákvæð og skilnings- ríka afstaða núverandi menntamálaráðherra til þessara mála. Það er kunnara en frá þurfi að segja, hve erfið fjárhagsstaða hinna frjálsu æskulýðs- hreyfinga á íslandi er og hversu gífurlegt afl mætti leysa úr læðingi t. d. innan ungmenna- félagshreyfingarinnar með auknum fjárstuðn- ingi við samtökin, sem hafa innan sinna vé- banda 17.000 félagsmenn I 196 félögum í öll- um sýslum landsins. í engu skal þó vanmetin sá stuðningur sem félögin hafa nú, bæði er varðar aðstöðu ýmiskonar og beinar fjárveit- ingar. H. Þ. SKINFAXI 3

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.