Skinfaxi - 01.06.1975, Qupperneq 6
Garðar Óskarsson form. XJmf. Skipaskaga,
Ingólfur Steindórsson framkvæmdastjóri og
Sigurður Guðmundsson formaður Iandsmóts-
nefndar fyrir framan sjómannsstyttuna á
Akranesi.
brautum og stökkaðstöðu. Olíumalarvell-
ur fyrir handknattleik verður endumýj-
aður, stór bílastæði útbúin við íþrótta-
völlinn og tjaldstæðin. Allt þetta og fleira
hefur verið á framkvæmdaáætlun bæjar-
ins, en landsmótið hefur tvímælalaust
orðið til þess að allir era sammála um
að koma þessum framkvæmdum í höfn
núna.
— Hefurðu frétt nokkuð um þátttöku
í mótinu?
— Þótt maður viti ekki ennþá ná-
kvæmlega um þátttökuna í einstaklings-
greinum, þá hef ég þegar haft veður af
því að þátttaka verði mjög mikil. Á fram-
kvæmdastjóranámskeiðinu í Skálholti um
fyrri helgi fékk maður góðar fréttir af
líflegum undirbúningi í ýmsum lands-
hlutum. Stærstu aðildarsamböndin hafa
á orði að senda 2-300 þátttakendur að
meðtöldum sýningarflokkum. Hvarvetna
virðist vera mikill áhugi fyrir mótinu, og
aðilar sem hafa verið í lægð undanfarin
mót, t. d. HVI, hyggja nú á myndarlega
þátttöku.
— Hvað verður um að vera á mótinu
annað en íþróttakeppni?
— Dagskráin er afar fjölþætt. Nefna
má . d. fimleikasýningar og þjóðdansa-
sýningar bæði innlendra og erlandra
flokka. Norðmenn sýna þjóðdansa og
svíar og danir fimleika auk íslensku
flokkanna. Margskonar skemmtiatriði
verða, svo og hátíðardagskrá eins og
venja er. Dansleikir verða svo öll þrjú
kvöld mótsins í nýja íþróttahúsinu.
— Hvað hyggja heimamenn á Akra-
nesi og í Borgarfirði til mótsins?
— Allir sem við höfum þurft að leita
Skrifstofa 15. landsmótsins er að Vesturgötu
52, Akranesi.
6
SKINFAXI