Skinfaxi - 01.06.1975, Blaðsíða 17
Ný íþrótt á landsmóti
BLAK
Anton Bjamason íþróttakennari er
stjórnandi blakkeppninnar sem nú verð-
ur í fyrsta sinn kynnt sem keppnisgrein
á landsmóti UMFÍ. Blak hefur átt vax-
andi vinsældum að fagna víða um land,
enda er þetta íþrótt sem víða er hægt að
stunda, t. d. í félagsheimilum og einnig
úti á sumrin.
Þegar við ræddum við Anton, var enn
ekki Ijóst hversu þátttaka vrði mikil í
blakkeppninni. Hann sagðist búast við
4—6 liðum. Yrði þá væntanlega keppt
með venjulegu keppnisfyrirkomulagi
þannig að landsmótsgestir fái að sjá
hvernig blakmót fara fram. Ef þátttaka
yrði hins vegar meiri yrði líklega að
keppa eins og á hraðmóti, en þá vinnur
það iið sem fyrr nær 21 stigi.
Blakinu er skammtaður ákveðinn tími
eins og öðmm kynningargreinum á mót-
inu, og verður að miða allt fyrirkomu-
lag keppninnar við þann tíma og þátt-
takendafjöldann.
Körfuknattleikur
Körfuknattleikur á landsmótinu.
í körfuknattlek tilkvnntu 8 lið þáttöku.
Þar var undankeppni sleppt og keppa
því öll liðin til úrslita á landsmótinu.
Þau eru: HSK — UMSK — UÍA —
UMFN — UMFG — UMSB — HSH
— USK.
Leiknir verða 15 leikir í körfuknatt-
leik, og fara þeir allir fram í nýja íþrótta-
húsinu.
SKINFAXI
17