Skinfaxi - 01.06.1975, Page 15
Siglingar
Á landsmóti UMFÍ verður nú í fyrsta
sinn keppt í siglingum til kynningar á
íþróttinni.
Siglingahópur þessi er frá UMSK og
verða þetta 25 bátar, misjafnlega stórir,
með tveggja manna áhöfn.
Keppni fer fram í hverri bátastærð
fyrir sig og einnig allir saman, en þá
verður dæmt eftir hæfni, en ekki hver
verður fyrstur í mark.
— Það hefur frést að sundfólk HSK
ætli í utanferð eftir landsmótið.
— Já við förum með 21 keppanda til
Danmerkur 19. júlí. Við verðum gestir
tveggja félaga í Ribe Amt og dveljum 5
daga á vegum hvors félags. Við gerum
ráð fyrir að keppa tvisvar í ferðinni.
Þetta er fyrsta sjálfstæða utanferð sund-
fólks HSK. í förinni verður besta sund-
fólk héraðsins, landsmótskeppendur og
nokkrir í viðbót.
Handknattleikur
Forkeppni handknattleiksins er nú lok-
ið og fara hér á eftir úrslit í hinum ein-
stöku riðlum keppninnar.
I riðill:
UMSE — UÍA — UMSS — HSÞ.
Úrslit leikja:
UMSS — UÍA = UMSS gaf
UMSS — HSÞ = UMSS gaf
UMSS — UMSE = 2:7
UÍA — HSÞ = 6:2
UÍA — UMSE 11 : 4
HSÞ — UMSE = 16 : 6
UÍA hlaut því 6 stig og HSÞ 4 stig.
II riðill:
UMSK — HSH — HVÍ — USK.
HSH og HVÍ hættu keppni en leikur
UMSK og USK fór 13 : 9 fyrir UMSK.
Liðin halda bæði áfram.
III riðill:
UMFN — HSK — UMFK.
Úrslit leikja:
UMFN — HSK = 27 : 5
UMFN — UMFK = 12 : 6
UMFK — HSK = ?? : ?
UMFN og UMFK halda áfram.
Liðin sem leika á Landsmótinu eru því:
UÍA — HSÞ — UMSK — USK —
UMFN — UMFK.
SKINFAXI
15