Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.06.1975, Page 7

Skinfaxi - 01.06.1975, Page 7
Ingólfur Steindórsson (í miðju) ræðir við iðnaðarmenn í nýja iþróttahúsinu þar sem unnið er dag og nótt við bygginguna. (Ljósm. S. Geirdal). til vegna mótsins, hafa tekið okkar mála- leitunum mjög vel. Bæði yfirvöld og allir íbúar í héraðinu hafa sýnt áhuga á þvi að búa þetta mót vel úr garði. Áhugi heimamanna fyrir mótinu fer stöðugt vaxandi. — Hverjar verða helsu nýjungarnar á þessu landsmóti? — Iþróttasýningarnar verða f jölbreytt- ari núna en nokkru sinni áður, og svo má minnast á kynninguna á 5 nýjum íþróttagreinum sem verða á dagskrá þessa móts. Hér er um að ræða borð- tennis, blak, júdó, lyftingar og siglingar. Kynning þessara greina sýnir stóraukna og fjölbreyttari íþróttastarfsemi ung- mennafélaganna, en allar þessar greinar hafa þau tekið á stefnuskrá sína á síðustu árum. — Að lokum samviskuspurning, — hvernig kanntu við starfið? — Mér þykir satt að segja gaman að þessu. Álagið er auðvitað talsvert mikið, en þetta er heldur ekki langur tími fram að móti svo að maður ætti að þola það. Ég vona bara að okkur takist að vinna sem best að þessu móti og gera það eftir- minnilegt og hreyfingunni til sóma eins og hin fyrri landsmót. 45 konur og karlar frá Hróarskeldu sýna fixn- leika og þjóðdansa á landsmótinu. Hér sjást nokkrir úr karlaflokknum í handstöðu á kistu. SKINFAXI 7

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.