Skinfaxi - 01.06.1975, Side 24
Hér eru nokkrir þátt-
takenda ásamt Heimi
Steinssyni skólastjóra
í Skálholti.
fyrri námskeiðum vegna margra nýrra
starfsmanna sem nú voru mættir í fyrsta
sinn.
Undir liðnum „Kynningarstarfsemi og
fjölmiðlun“ flutti Jón Ásgeirsson frétta-
maður erindi um efnið og spjallaði síð-
an við þátttakendur og svaraði fyrir-
spumum, en þær urðu all margar og
spunnust af þeim fjörugar og fræðandi
umræður.
í umræðum um ,,Ungjnennabúðir“
upplýstist að þær verða nú fleiri en
nokkru sinni fyrr eða átta talsins lijá eftir-
töldum samböndum: UMSK — HSH —
HVÍ — UMSS — UMSE — HSÞ —
UÍA og HSK. Þessari þróun ber að
fagna alveg sérstaklega, enda á þessi
starfsemi miklum vinsældum að fagna í
þeim héruðum sem hún er fyrir hendi.
Undir þessum lið báru menn saman
bækur sínar varðandi starfsmannahald,
aðstöðu, dagskrá, verð o. fl. Fræddust
þannig og fengu hugmyndir hver hjá
öðrum.
Þá urðu einnig miklar umræður um
Félagsmálaskóla UMFÍ og námskeið
þau sem haldin hafa verið á vegum hans,
enda voru þarna samankomnir flestir
af athafnasömustu kennurum skólans.
15. landsmótið var að sjálfsögðu á-
hugamál allra sem þama voru mættir,
og er greinilegt að sjaldan hefur verið
vandað jafnmikið til undirbúnings hjá
hinum ýmsu aðildarsamböndum og nú.
Ingólfur Steindórsson frkvstj. landsmóts-
nefndar var mættur á námskeiðinu og
greindi hann frá ýmsum þáttum varð-
andi undirbúning og dagskrá mótsins og
þeirri aðstöðu sem þar verður fyrir hendi.
Framkvæmdastjórarnir ræddu nokkuð
um ferðalögin á mótið svo og uppihaldið
fyrir sína menn mótsdagana. Allmargir
höfðu í hyggju að hafa mötunevti á
staðnum og var í sumum tilfellum slegið
saman mötuneyti fyrir tvö héraðssam-
bönd. Þetta er ánægjuleg þróun og sam-
starf, enda skapar þetta meiri kynningu
og samheldni í liðunum. Þá ráðgerðu
menn að taka hljóðfæri með og stytta
sér þannig stundir við leik og söng í
matartjöldunum á kvöldin.
Margt fleira mætti hér nefna af því
24
SKINFAXI