Skinfaxi - 01.08.1977, Qupperneq 6
Xovdisk I /> \
Samorgan isalion tbv
f ngdoinsavbvjdv ,
NSU kynnir
aðildarfélög sín
Á þessu sumri kom út á vegum NSU
litprentaður bæklingur þar sem kynnt
eru þau félög sem mynda þetta sam-
band norrænna ungmennahreyfinga.
NSU var stofnað 1947 af nokkrum
landssamtökum æskufólks á Norður-
löndum, einkum ungmennafélögum, í
þeim tilgangi að skipuleggja og auka
samskipti sín á milli. Áður höfðu sam-
skipti þeirra verið tilviljanakennd og
laus í reipunum, en þau hófust miklu
fyrr, t.d. var fyrsta norræna ung-
mennavikan haldin í Danmörku 1935.
í dag eru 12 landssamtök í NSU og
eru um 1 milljón félaga innan þeirra
vébanda.
Samskipti aðildarfélaganna byggj-
ast á sameiginlegum verkefnum eins
og norrænni ungmennaviku, norrænni
ungbændaráðstefnu, margs konar
sameiginlegum námskeiðum og í-
þróttaheimsóknum milli aðildarsam-
banda svo eitthvað sé nefnt. Fram-
kvæmd þessara verkefna er látin vera
til skiptis í löndunum og hefur t. d.
UMFÍ verið gestgjafi allra þessara
verkefna, að aðalfundi NSU undan-
skildum. UMFÍ hefur átt mann í stjórn
NSU frá 1972, núverandi stjórnarmað-
ur er Jóhannes Sigmundsson. Til
glöggvunar verða hér talin upp að-
ildarfélög NSU.
ísland, Ungmennafélag íslands.
Danmörk: Sydslesvigs danske Ung-
domsforeninger; De Danske Gymna-
stik og Ungdomsforeninger; Dan-
marks Landboungdom og Danmarks
4 H.
Sviþjóð: Riksforbundet Sveriges 4 H.
Finnland: Kinnlands Svenska 4H;
Suomen nuorison Liitto; Suomen 4 H
Liitto; Finnlands Svenska ungdoms-
forbund.
Noregur: Norges Bygdeungdomslag;
Norges Ungdomslag; Norske 4 H.
6
SKINFAXI