Skinfaxi - 01.08.1977, Síða 7
-'l
Á FERÐ UM SOVÉTRÍKIN
Snemma á þessu vori barst Æsku-
lýðssambandi íslands boð frá Sovéska
æskulýðssambandinu um að senda
þriggja manna nefnd til Sovétríkj-
anna i júlímánuði. Boð þetta var þegið
með þökkum þar sem því fylgdi ekki
svo mikill kostnaður, aðeins þurfti að
greiða fargjaldið þil Kaupmannahafn-
ar, allt annað greiddi Sovéska æsku-
lýðssambandið. Æskulýðssamband ís-
lands óskaði eftir því við aðildarsam-
bönd sín að þau tilnefndu fulltrúa i
ferð þessa. Helmingi fleiri umsóknir
bárust en unnt var að koma í ferð
ina svo gengið var til kosninga á
stjórnarfundi hjá ÆSÍ til þess að skera
úr um það hverjir hnossið hrepptu.
Niðurstöður þeirra kosninga urðu
þær að sá er þetta ritar og þeir Gylfi
Kristinsson SUF og Þorsteinn Magn-
ússon ÆAB skyldu hljóta þann heið-
ur að láta Rússa dekra við sig í viku-
tima í júlímánuði, nánar tiltekið frá
7.---14. júlí.
í MOSKVU
Þoka hvíldi yfir Moskvuborg þegar
þotan, sem meðal annarra farþega,
hafði þrjá íslendinga meðferðis, bjó
sig undir að lenda. Ferðin, sem í reynd-
inni hafði ekki tekið nema 2 y2 tíma,
en samkvæmt reglum um tímabreyt-
ingu 41/2, var senn á enda.
Þá stöndum við á rússneskri grund.
Strætisvagn, ekki af nýjustu gerð,
rennir að landgangi flugvélarinnar og
aðsópsmiklar valkyrjur benda okkur
að stíga upp í hann.
í flugstöðinni, sem er geysimikil
bygging, er mikill ys og þys, en áður
en inn í þann ys verður komist verður
að fara í gegnum vegabréfaskoðun.
Sú skoðun reynist bæði löng og ítar-
leg, kannski ekki nema von, aldrei að
vita hverju búast má við frá íslandi.
Sem við stöndum þarna heyrist sagt
á islensku: „Er þetta ekki íslenska
sendinefndin?“ Við hrukkum hálft í
hvoru við, áttum einhvern vegin ekki
von á að heyra íslensku á þessari
stundu. Þarna var þá kominn túlkur-
inn okkar Arvo Allas ásamt móttöku-
nefndinni, Andrei Filipov, varaform.
Sovéska æskulýðssambandsins og
Vladimir Sjisjkin starfsmanni Finn-
landsdeildar sambandsins. Arvo átti
eftir að verða okkur mikil stoð og
í Moskvu. Einn bílanna sem ók okkur, fyrir
framan hótelið sem við dvöldumst á í seinna
skiptið.
SKINFAXI
7