Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.1977, Síða 13

Skinfaxi - 01.08.1977, Síða 13
Börnin og stjórnendur þeirra kepp- ast við að skemmta okkur þessa dags- stund sem við dveljum þarna, með söng, hljóðfæraleik og dansi. Þá er okkur boðið til keppni í knattspyrnu, þ.e. okkur þremenningunum í sendi- nefntíinni, túlkinum Arvo og Vladi- mir. Við leggjum ótrauðir til keppni og að sjálfsögðu sigrum við, þótt það sé ekki fótboltakunnáttu að þakka, en það er önnur saga. Við fræðumst einnig um starfsemi búðanna og skoðum híbýlin, þar sem börnin sofa og matast á meðan dvöl þeirra stendur. Læknir hefur aðsetur í búðunum, fylgist hann með heilsu- fari barnanna, en aúk þess vegur hann þau og mælir við upphaf og endi dval- ar þeirra. Sagði hann að undantekn- ingarlaust þyngdust þau þann tíma sem þau dveldu þar. íþróttastjóri hef- ur umsjón með íþróttakennslunni og tónlistarkennari hefur umsjón með tónmenntuninni, og flokksstjóri er yf- ir hverjum 12 barna hópi. í æskulýðsbúðunum. Þegar við yfirgefum búðirnar eftir að hafa þegið kræsingar, er tekið að rökkva. Börnin hafa aftur komið sér fyrir meðfram stígnum og nú til að kveðja okkur. Með óminn af hljóð- færaleik og söng ökum við út í myrkrið í átt til borgarinnar. Annar dagur veru okkar í Georgíu er sunnudagur. Það vekur athygli okkar að verslanir eru opnar sem á virkum degi væri, enda þótt sunnu- dagur sé almennt frídagur. Dagskrá þessa dags hefst með því að við göngum á fund 2. ritara Kom- sómól deildar Georgíu, sem fræðir okkur um stofnun, störf og stefnu þessarar fylkingar ungs fólks þar í ríki. Svipaða fundi sitjum við á hverjum degi þann tíma sem við dveljum i Georgíu, einn til tvo á dag. Þeir sem við hittum þannig að máli eru m.a. ritari æðstaráðs Georgíu og ritari Al- þýðusambandsins. Á þessum fundum kemur margt fróðlegt fram sem of SKINFAXI 13

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.