Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.1977, Blaðsíða 18

Skinfaxi - 01.08.1977, Blaðsíða 18
Ungmennafélag á höfuðborgarsvæði Viðtal við Kristján B. Þórarinsson, formann Umf. Víkverja, Reykjavík Kristján B. Þórarinsson. — Kristján, nú hafði Umf. Víkverji nær eingöngu glímu á dagskrá þar til á síðasta hausti er fitjað var upp á ýmsum nýjungum í starfseminni. Hverjar voru þessar nýjungar og hvernig hefur gengið að koma þeim á? — Á síðast ári ákvað stjórn Umf. Víkverja að stefna að aukinni starf- semi. I,angaði okkur til að gera tilraun með fleiri íþróttagreinar og tryggja á þann hátt undirstöðu ungmennafé- lagsstarfseminnar á höfuðborgar- svæðinu. Fyrir valinu urðu skák og frjálsar íþróttir. Við fengum góða leiðbeinendur og með þeirra aðstoð tókst að koma á samfelldu starfi, með þeim árangri sem okkar bjartsýnustu félagar þorðu ekki að hugsa um í upp- hafi. Við eygjum því tækifæri til skjóts frama ef fram fer sem horfir. íþrótta- fólkið er ungt og fullt áhuga. — Hvernig hefur starfinu verið hag- að í sumar? — Eins og ég sagði áðan hefur náðst vonum betri árangur til dæmis muh skáksveit Víkverja tefla til úrslita á Skákþingi UMFÍ nú í haust. Árangur af starfi frjálsíþróttadeildarinnar kemur ekki í ljós strax, en við vonumst til að geta sent kröftugt lið á næsta Landsmót UMFÍ. Æfingar voru mjög fjörugar í fyrra vetur, en vegna að- stöðuleysis höfum við orðið að láta fara lítið fyrir okkur í sumar en eyða þeim tíma í staðinn til að huga betur að framtíðinni. í deildina eru skráðir um 70 manns og voru sjaldan færri en 20—25 manns á æfingum hjá okkur í Baldurshaga í fyrra vetur en við æfð- um þar á fimmtudagskvöldum. — Telur þú að þörfin fyrir ung- mennafélög sé sú sama á höfuðborg- arsvæðinu og úti á landsbyggðinni? — Það er min skoðun að ungmenna- félög séu nauðsynleg hvar sem er á landinu en spurningin hlýtur ávallt að vera hvernig sú starfsemi sé saman sett. Ef til dæmis Umf. Víkverji hefði yfir nægu fjármagni að ráða, þá gæti starfsemin orðin mun meiri. — Hvað eru margir félagar í Vík- verja í dag? — Eins og ég vék að áðan þá hefur Víkverji verið að auka og breiða út starfsemi sína. í framhaldi af þeirri starfsemi hefur orðið aukning á fjölda 18 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.