Skinfaxi - 01.08.1977, Page 21
Borgfirðinga er hinn öruggi sigurvegari
í 400 og 1500 m. hlaupi en þó töluvert frá
sinu besta, enda litil keppni. Og senn er
komið að síðustu greinum á þessum fyrri
degi héraðsmótsins, 4x100 m. boðhlaupi
kvenna og karla. Boðhlaupin geta oft
verið hin skemmtilegustu á að horfa. í
kvennaflokki er töluverð keppni og bar-
átta, en A-sveit Skallagrims með Svövu
Grönfeldt í endasprettinum sigrar örugg-
lega. Skallagrimur sigrar einnig í karla-
flokki og á nýju Borgarfjarðarmeti, 47.1
sek.
Klukkan er 16.30 og mótinu lokið að-
eins 10 mín. á eftir áætlun. Keppendur
halda til síns heima til að hvíia sig undir
átök siðari dagsins albúnir þess að bæta
nú enn við fyrri árangra.
Fararskjóti Skinfaxa (illa komið fyrir
þeim mikla fák), japanskur i húð og hár,
er ræstur og haldið er af stað og enn
norður á bóginn.
í Ólafsvik hefur mikil undirbúnings-
vinna verið lögð í að skapa aðstöðu til
þess að hægt væri að halda héraðsmótið
og sem jafnframt væri til frambúðar.
Óhætt er að segja að sú vinna hafi tek-
ist vel.
Allir eru ánægðir, keppendur jafnt sem
SKINFAXI
21