Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.1977, Síða 22

Skinfaxi - 01.08.1977, Síða 22
þeir er barist hafa fyrir því að fá þessa aðstöðu fullbúna. Og keppnin hefst. Margar greinar í gangi, gamla kempan Krling Jóhannes- son er mættur i kúluvarpið og hefur þar með sitt 26. keppnisár. f 200 m. hlaupi, sem er ný keppnisgrein á héraðsmóti, verða tveir hnífjafnir, Jónas Kristófers- son, Ólafsvík og Bjartmar Bjarnason, Stykkishólmi. Þeir vilja fá úr þvi skorið hvor sé betri og ákveðið er að þeir hlaupi til úrslita síðar um daginn. í því hlaupi er Jónas sá sterki og Vikingur hlýtur 4 stig en Snæfell 3. María Guðnadóttir íþróttamaður HSH ’75 og ’76 sýnir og sannar að hún er i góðri þjálfun, fer léttilega yfir 1.68 m. í hástökki og nýtt héraðsmet er í höfn; hækkað er i 1.70 en það verður henni of- viða að sinni þó ekki muni miklu. Veðrið er eins og best verður á kosið. logn og hiti, sólin veður í skýjum en tekst öðru hverju að finna sér skýlausan blett á himnum og hellir sér yfir keppendur og áhorfendur sem dásama veðrið hátt og í hljóði; þulurinn tilkynnir að sett hafi verið nýtt héraðsmet i kúluvarpi kvenna, þar er að verki Kristin Bjarg- mundsdóttir sem nú mætir til leiks eftir Bárður Tryggvason og Pálmi Frímansson koma í mark í 1500 m. hlaupinu. Síðasta hönd lögð á verkið. Gylfi Magnús- son leggur dregil á atrennubrautina. 6 ára hlé, sjálf átti hún fyrra metið, spurningin er bara á hverju hún hafi æft sig þessi ár. Dagurinn liður og mótið 22 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.