Skinfaxi - 01.02.1978, Blaðsíða 4
Af útgáfustarfi
FnÉTTABLAD
V. M. F. B.
cnfr^íi&igáf'i
‘Vesember 1977
Skinfaxa hefur borist GUSA, fjöl-
ritað fréttablað Ungmennafél. Borg-
firðinga. Fréttablað þetta er helgað
afmælisári UMFB en félagið varð 60
ára á sl. ári. Formaður UMFB er
Helgi M. Arngrímsson.
Þá hefur Skinfaxa borist ársskýrsla
Umf. Stafholtstungna fyrir árið 1977,
snyrtilega fjölrituð með vandaðri
kápu. Starf Umf. Stafholtstungna
hefur verið með miklum ágætum und-
anfarin ár og ársskýrsla þessi ber með
sér að svo er enn. Formaður félagsins
er Þór Gunnarsson kennari, Varma-
landi.
Ennfremur hefur Skinfaxa borist
mótsskrá UMSB fyrir 1978, útgefin af
frjálsíþróttanefnd sambandsins en
ábyrgðarmaður er Flemming Jessen.
Það þarf ekki blöðum um það að
fletta hversu mikill hægðarauki slík
útgáfa er fyrir keppendur jafnt sem
þá sem fylgjast vilja með mótum,
hvort sem er innan héraðs eða utan.
Og einnig er best að slík mótsskrá
komi út í upphafi árs en ekki þegar
keppnistímabil er hálfnað eða meira.
4
SKINFAXI