Skinfaxi - 01.02.1978, Blaðsíða 7
UMFÍ eignast eigið
Eins og lesendum Skinfaxa er kunn-
ugt þá samþykkti síðasta þing UMFÍ
tillögur þess efnis að stjórn UMFÍ
skipaði nefnd til að vinna að því að
UMFÍ kæmist í eigið húsnæði með
starfsemi sína hið bráðasta. Nefnd
þessi var siðan skipuð fljótlega eftir
þing en í henni sitja eða öllu heldur
vinna og hafa unnið þeir Pálmi Gísla-
son, Gunnar Sveinsson og Valdimar
Óskarsson. Árangur þeirra starfs varð
sá að UMFÍ undirritaði samning um
kaup á 3. hæð húseignar að Mjölnis-
holti 14, sem þar er í smíðum þann 9.
desember sl. Seljandi er Kristján
Finnsson, húsasmíðam. Hæðin er
keypt fullfrágengin að utan og innan
og miðað við það í samningi að hún
verði afhent 1. júní á þessu ári. Kaup-
verð er 17 milljónir.
Skinfaxi leitaði til Pálma Gíslason-
ar formanns húskaupanefndar með
nokkrar spurningar varðandi húsa-
kaupin.
— Hvernig gekk að finna hentugt
húsnæði, Pálmi?
— Þegar nefndin hóf störf í byrjun
vetrar hafði nýlega farið fram ítarleg
könnun á fasteignamarkaðnum hér í
Reykjavík af Skáksambandi íslands,
sem var að leita sér að hliðstæðu hús-
næði og við fengum aðgang að þeim
húsnæði
Pálmi
Gíslason
athugunum og tilboðum og virtist
okkur að aðeins eitt húsnæði kæmi til
greina af því sem í boði var. Á meðan
leitað var eftir samkomulagi um verð
kom húseignin að Mjölnisholti 14 í
sölu. Við sáum þegar að hér var um
mjög hagstæð kaup að ræða. Við gerð-
um síðan tilboð með fyrirvara um
samþykki stjórnar, en settum um leið
auglýsingu í blöð, þar sem við auglýst-
um eftir húsnæði. Þótti okkur það rétt
ef eitthvað annað væri á leiðinni á
markaðinn. Sú auglýsing sannaði enn
betur fyrir okkur að við værum á
réttri leið með Mjölnisholtið. Hús-
byggjandinn gekk síðan í öllu að okk-
ar tilboði og kaupsamningur var
gerður.
Ég held að óhætt sé að fullyrða að
það hafi verið mikill kostur að komast
í nýtt húsnæði og það er líka mikils
virði að fá sjálfir að ráða innrétting-
um húsnæðisins.
— Ertu ánægður með staðsetning-
una?
— Það verður að teljast sérstök
heppni að hafa fengið svo góða stað-
setningu á nýrri byggingu. Það er mik-
SKINFAXI
7