Skinfaxi - 01.02.1978, Side 17
Þeir spyrja konur
hjá UMSS
Ungmennasamband Skagafjarðar
hefur að undanförnu verið að rekja
garnirnar úr kvenfélagskonum á sam-
bandssvæðinu í spurningakeppni
kvenfélaga. Fara keppnir þessar fram
á hinum ýmsu stöðum innan héraðs
og keppa 4 kvenfélög í hvert sinn.
Eins og að líkum lætur er troðið kaffi
og kökum í mannskapinn að lokinni
hverri keppni, enda vel liðið af að-
standendum keppninnar sem vitað
hafa að hverju þeir gengu í upphafi.
Ýmislegt er til skemmtunar fyrir þá
sem hlíða á getspeki kvennanna. Eru
þeir m. a. látnir spreyta sig á að
þekkja með nafni og skrá á þar til
gerð blöð, fyrirbrigði sem varpað er á
tjald með skuggamyndavél.
í lokin er svo dregið úr réttum
svörum og hlýtur sá heppni jafnan
bókarverðlaun, en takmarkið er að
þessi verölaun séu gagnleg, sagði Guð-
mundur Gunnarsson framkvstj. hjá
UMSS. Guðmundur sagði að mikið líf
væri i skákinni hjá þeim um þessar
mundir. Sveitakeppni væri nýlokið en
í henni hefðu Fljótamenn verið hlut-
öllum til góða. — Svo segi ég eins og
góður bóndi hér í sveit þegar hann
sendi sveitunga sínum heillaóska-
skeyti í tilefni af 80 ára afmæli hans:
„Hafðu það eins og þú vilt, góði“.
Ásmundur Gíslason.
form. Umf. Mána.
skarpastir 5 sveita. Héraðsmót i skák
er i fullum gangi með þátttöku 18
einstaklinga (karlkyns) og er þar
mikil barátta og engin leið að spá um
úrslit að svo komnu máli að sögn
Guðmundar.
Ársþing UMSS verður 1. apríl í fé-
lagsheimili Ripurhrepps (þetta mun
ekki vera aprilgabb).
Skjaldarhafi 1978
Hjálmur Sigurðsson, Umf. Víkverja, varð sig-
urvegari í Skjaldarglímu Ármanns, sem háð
var þann 19. febrúar sl.
SKINFAXI
17