Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.02.1978, Side 5

Skinfaxi - 01.02.1978, Side 5
Leiklist — r Ahugamannastarf Viðtal við Helgu Hjörvar framkv.stj. BÍL Leiklist hefur um langt skeið verið snar þáttur áhugamannastarfs margra ungmennafélaga i viðleitni þeirra til að efia og tæta félags- og menningar- líf til sjávar og sveita. Ungmennafélag íslands hefur stutt þetta starf með söfnun og útgáfu leikþátta og eru í dag til 85 slikir þættir í tveimur möppum. Hér er aðeins um að ræða einþáttunga sem frekar eru ætlaðir til uppfyllingar með öðru efni en að um heilar kvöldsýningar sé að ræða. Til að sinna þætti áhugamannaleik- starfs er Bandalag íslenskra leikfélaga til orðið. Skinfaxi fór á stúfana til að forvitnast nánar um störf og mark- mið bandalagsins. Hjá Helgu Hjörvar frkvstj. BLÍ feng- um við þær upplýsingar að BÍL væri bandalag 70 leikfélaga sem dreifð væru um allt land, að vísu nokkuð misþétt en næðu þó um allt land. Starf þessa félaga væri allmikið að vöxtum og mætti í því sambandi geta þess að hið íslenska áhugamannaleikhús væri hið stærsta á Norðurlöndum, Evrópu Helga Hjörvar, framkvæmdast j. BÍL og jafnvel í heiminum, miðað við fólksfjölda. Á síðasta ári voru sviðsett og flutt 50 stykki sem teljast kvöld- sýningar. Reikna mætti með því að hvert þessara leikrita væri flutt að meðaltali tíu sinnum og að fjöldi á- horfenda á hverja sýningu væri að meðaltali 100 þannig að reikna mætti með þvi að á sl. ári hefðu 50 þúsund manns sótt hið íslenska áhugamanna- leikhús. Hvert er aðalstarf BÍL? Aðalstarf bandalagsins kvað Helga vera hvers konar þjónustu við aðildar- félögin, s.s. leiga á búningum og hár- SKINFAXI 5

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.