Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.02.1978, Page 13

Skinfaxi - 01.02.1978, Page 13
Hvað er að frétta af Ströndum? Fyrir skömmu var hinn ungi for- maður HSS, Matthías Lýðsson, á ferð hér í borg og leit þá við á skrifstofunni. Skinfaxi greip tækifæri og fékk hann til að segja sér allt af létta af félags- málum og félagslífi þar nyrðra. Matt- hías er tvítugur að aldri og býr i Kirkjubólshreppi á bænum Húsavík. Hann hefur verið formaður HSS frá 1975. — Það eru nú fimm ungmennafélög starfandi á sambandssvæði HSS, segir Matthías þegar hann er spurður um félagsstarfið. — Ef við byrjum nyrst þá er ungmennafélag í Árneshreppi sem heitir Leifur heppni, það er mjög vel starfandi og áberandi hvað þar ríkir góður félagsandi; ég er nokkurn veginn viss um að sú einangrun sem hreppurinn býr við hefur þessi áhrif á félagsandann, fólkið verður að vera sjálfu sér nógt og það er fátt sem glepur. Það þarf því ekki að hafa áhyggjur út af því að þetta félag logn- ist út af, a.m.k. ekki í bráð. Hvað íþróttir snertir er þess helst að geta að Leifur heppni á marga góða sund- garpa og sundið iðka þeir í sundlaug sinni í Krossanesi. Næsta starfandi fé- lag er Sundfélagið Grettir í Kaldrana- neshreppi, aðalstarf þess er í Bjarnar- firðinum þótt félagssvæðið sé mun stærra, nær m.a. norður í Drangsnes, SKINFAXI 13

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.