Skinfaxi - 01.02.1978, Blaðsíða 14
en þar var áður starfandi ungmenna-
félag sem hét Neisti. Þeir Grettismenn
hafa synt í lauginni að Laugarholti en
þar er einnig skóli og nýlegt íþrótta-
hús sem tekið var í notkun fyrir 4—5
árum.
Á Hólmavík er fjölmennasta ung-
mennafélagið en það heitir Geislinn,
það er einnig yngsta félagið hvað með-
limi varðar en elsti virki meðlimurinn
er 26 ára. Ég tel það nokkuð há starf-
inu að eldri menn eru ekki með til
þess að st.yðja við og aðstoða þá yngri
við félagsstörfin. Umf. Geislinn var
með skemmtun á þrettándanum með
ýmsum heimatilbúnum skemmtiatrið-
um, en úr því farið er að minnast á
skemmtun þá má geta þess að aðstaða
til skemmtanahalds er vægast sagt
hörmuleg þar sem enn er notast við
Braggakumbalda frá striðsárunum.
Það mun hafa verið gerð tilraun fyrir
15—20 árum til þess að byggja nýtt
félagsheimili og sú tilraun er að
nokkru sýnileg enn í dag, því grunn-
ur var reistur, en ekki voru allir sam-
mála um staðarvalið og félagsheim-
ilið varð aldrei meira en þessi grunnur.
Góð samvinna er milli félagasamtaka
á Hólmavík, t.d. stjórnar formaður
ungmennafélagsins, sem er íþrótta-
kennari á staðnum, konum í frúarleik-
fimi. Knattspyrna er sterkasta hlið
þeirra á Hólmavík á íþróttasviðinu og
lið það sem keppt hefur undir nafni
HSS er þaðan. Á síðasta sumri útveg-
aði HSS þeim þjálfara og bar kostnað
af vinnu hans. Því er ekki að neita að
sú ráðstöfun kom illa við fjárhag sam-
bandsins, þar sem tekjustofnarnir eru
fáir og smáir. En þar með er ekki sagt
að hann hafi ekki verið vel að launum
sínum kominn, hans framlag var gott.
Fyrir sunnan Hólmavíkurhrepp tek-
ur Kirkjubólshreppur við og þar er
Ungmennafélagið Hvöt. Það hefur
töluvert að segja í félagslífinu þar
hversu karlmenn eru i miklum meiri-
hluta og get ég nefnt sem dæmi að
undir 15 ára aldri eru tuttugu strákar
á móti einni stelpu. Það er þó ýmislegt
að ske, haldið er þorrablót árlega,
komið saman í Selvangi til likamsiðk-
bridge er mikið spilað og þá er oft
ana, s.s. borðtennis og badminton og
hefur badminton orðið æ vinsælla með
árunum. Þess má geta að þeir sem
fara suður til náms hafa gengið í
TBR til þess að geta haldið áfram að
iðka þessa iþrótt. Þess má einnig
geta að sá siður hefur viðhaldist að
halda aðalfund ungmennafélagsins á
milli jóla og nýárs.
Syðsta félagið er svo Umf. Harpa i
Hrútafirðinum og er nokkuð langt bil
á milli þessara tveggja félaga þar sem
ekki er starfandi ungmennafélag. Það
hefur orðið til þess að tengsl við Hörpu
hafa nokkuð rofnað og þá sérstaklega
tengsl stjórnar sambandsins við stjórn
félagsins hvort sem landfræðilegum
aðstæðum er þar einum um að kenna.
Af héraðssambandinu sjálfu er það
helst að segja að það er á hausnum, og
gagnstætt reynslu Jóns Guðjónssonar,
HVÍ, þurfum við að skríða betlandi um
héraðið. Það verður þó að koma fram
að skilningur sýslunefndar og sveitar-
stjórna er fyrir hendi, og þessir aðilar
hafa styrkt sambandið myndarlega á
undanförnum árum. Ég tel að ef sam-
bandið réði til sín starfsmann, sem
14
SKINFAXI