Skinfaxi - 01.02.1978, Side 16
Heilir og sælir
Nesjaskóla 7.2. 1978
Hér hafið þið 24 nýja áskrifendur.
Vona sannarlega að öðrum takist
einnig vel í söfnun áskrifenda. Víst er
það að bráðnauðsynlegt er að efla
Skinfaxa til muna. Öflugt málgagn
hreyfingarinnar er henni mikil lyfti-
stöng, miðlar upplýsingum og alls
konar fróðleik og fréttum, þannig að
ungmennafélagar hvar á landinu sem
er geta fylgst með gangi mála hverju
sinni. Við í litlu félögunum finnum
það vel hvað Skinfaxi er örvandi. Oft-
lega sækjum við í blaðið ýmsar hug-
myndir varðandi starfið. Einnig sjáum
við að starfið hjá okkur er svipað og
hjá öðrum og óneitanlega eykur það
Herferð í söfnun
áskrifenda Skinfaxa
í upphafi þessa árs var formönnum
allra ungmennafélaga og héraðssam-
banda UMFÍ sent bréf frá höfuðstöðv-
unum, ásamt áskrifendasöfnunarlista.
í bréfi þessu voru þeir hvattir til dáða
við söfnun nýrra áskrifenda svo og
við að senda fréttir og annan fróðleik
til blaðsins.
Nokkrir formenn hafa þegar brugð-
ið við og aðrir eru í óða önn við söfn-
unina. Til fróðleiks birtist hér bréf
frá einum þeirra, Ásmundi Gíslasyni
formanni Umf. Mána í Austur-Skafta-
fellssýslu.
sjálfstraust okkar. Óskum við félagar
i Mána blaðinu allra heilla á komandi
árum.
Aðalfundur Mána var haldinn 5.
febrúar síðastliðinn. Ný lög félagsins
voru samþykkt. Stjórnin var endur-
kjörin en í henni eiga sæti: Ásmund-
ur Gíslason, Nesjaskóla, formaður;
Þrúðmar S. Þrúðmarsson, Miðfelli,
ritari, Hákon Skírnisson, Borgum,
gjaldkeri; varastjóm og tveir endur-
skoðendur. Kosin var skemmtinefnd
og fulltrúar á sambandsþing Úlfljóts
valdir.
Meginverkefni næsta starfsárs var
ákveðið að skyldi vera endurreisn úti-
svæðis, spildu, sem er í eigu félagsins,
afmörkuð af hlöðnum veggjum og
trjám. — Hreinsun á spýtnatrasli,
dekkjum o. fl. hér í sveit er fram-
kvæmd árlega, öllu hlaðið í köst og
kveikt í um áramót. Spilavistir, bingó,
íþróttaæfingar 2 kvöld í viku, félags-
fundir af og til, flugeldasala, sala á
póstkortum. Þetta og sitthvað fleira
fer fram á vegum félagsins á hverju
ári. Félagsmálanámskeið var reyndar
haldið í félaginu síðast í nóvember.
Uppfærsla á leikriti eftir Jökul Jak-
obsson (hvern annan!) í bígerð, svo
og gönguferðir og almenn hreinsun á
drasli hér í sveit. Félagsmerki er í
hönnun. Að lokum má geta þess að
aðalfundur USÚ verður að Hofi i Ör-
æfum 11. marz nk.
Fleira hef ég ekki að segja í bili. Þið
ráðið hvort þið viljið birta hluta úr
þessu bréfi í Skinfaxa. Bréfið er ein-
ungis sk.rifað til að svala forvitni ykk-
ar um hagi okkar Mánafélaga. Nú,
samskipti manna innan UMFl eru jú
16
SKINFAXI