Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.12.1978, Qupperneq 4

Skinfaxi - 01.12.1978, Qupperneq 4
og forráðamönnum héraðssambanda, og einstakra ungmennafélaga, sem sumir hverjir hafa sinnt þessum þætti mjög myndarlega. Þáfagna ég heils hugar endur- heimtum áhugamanni og góðum félaga Guðmundi Guðmundssyni, sem kominn er á ný ífræðslumálin með okkur, og vœnti ég mikils af samstarfinu við hann, og veit að hann á eftir að marka tímamót með sínum skipulagstillögum í þessum undirstöðuþættifélagsstarfseminnar. Landshappdrætti UMFÍ hefur nú allt færst í aukana við þessi auknu umsvif hreyfingarinnar, og skulum við vona að félaga okkar Pétri Eysteinssyni, fram- kvæmdastjóra happdrættisins takist í góðri samvinnu við ykkur, og raunar alla landsmenn, að selja upp eða því sem næst, það yrði vissulega virðulegur loka- sprettur þessa viðburðaríka starfsárs í sögu UMFÍ. Nýja starfskrafta á skrifstofunni bjóðum við velkomna til starfa, um leið og við þökkum frábært starfframkvœmdastjórans okkarsem öllum þessum þráðum sem ég hefi hér nefnt heldur í hendi sér og raunar fjölmörgum öðrum sem þið þekkið, og óþarft er að fara um mörgum orðum í okkar hóp. Égget þó ekki stillt mig um við þetta tækifæri að minnast á einn þeirra, og ef til vill þann þýðingar- mesta. Ég hugsa að fáir forustumenn hreyfingarinnar og aðrir ungmennafélagar viti eða geri sér grein fyrirþví hversu traustfjármálastjórn Sigurðar er, þráttfyrir oftá tíðum takmörkuð fjárráð samtakanna og erfiða innheimtu. Góðir félagar og heimamenn, ég þakka þá aðstöðu sem okkur er hér búin með þennan Sambandsráðsfund UMFÍ. Það fer vel á því að vera hér og nú I heima- byggð framkvæmdastjórans okkar, og stærsta ungmennafélags landsins Umf. Breiðabliks. Við skulum líka vona að samfundir okkar nú blási okkur nýjum lífsanda og orku, eins og á Þingvöllum við Öxará haustið 1977, þá getum við og munum fagna nýjum sigrum og auknu starf á næsta Sambandsþingi UMFÍ og I næstu framtíð. íslandi allt. SK/NFAXI óskar lesendum sínum gleðilegra jóla, árs ogfriðar. SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.