Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.12.1978, Qupperneq 8

Skinfaxi - 01.12.1978, Qupperneq 8
-Ðanmerkurferð- UMFÍ1978 í siðasta tbl. Skinfaxa var sant frá aödraganda og upp- hafi ferðar frjálsiþróttafólks til Danmerkur að loknu 16. fandsmóti UMFÍ á Selfossi í boði AAG. Hér verður frásógninni haldið áfram á öðrum degi ferðar- innar. I'ararstjórar I þessari ferð voru Hafsteinn Þorvaldsson og Sigurður Geirdal, aðstoðarmenn Sigmundur Her- mundsson og Gunnar Kristjánsson. Liðsstjórar Haf- stcinn Jóhannesson og Aðalbjörg Hafsteinsdóttir. Þjálfari var Bobrow hinn rússneski sem hcfur verið þjálfari hjá Breiðablik á þessu ári. Frft 100 ■ hltapi i Jta Sverrisaoii ammr M vMH «B HtaMr PMm M 1^1 ^reyta þaraa fyrir U JM J'.t. 0 SKINFAXI í Árósum Það má nærri geta að þá tvo daga sem hópurinn dvaldi í þessari stórborg hafi verið í nógu að snúast og gestgjafarnir kepptust við að gera sem best við gesti sína. Farið var með hópinn víða um, sólin heill- aði marga og sundmiðstöð varð vettvangur sóldýrkendanna. Þegar hópurinn lá og flat- magaði á grasbala á bökkum sundlaugar- innar hlupu tveir danskir drengir framhjá, gripu fyrir augun og hrópuðu í sífellu „við fáum ofbirtu í augun” og náhvítir íslend- ingarnir roðnuðu. Dýfingapallar heilluðu og þótt tilburðir margra væru ekki beisnir náðu nokkrir að sýna tilþrif sem ekki gáfu eftir tilburðum dönsku peyjanna. Það vakti athygli okkar að vatnið í sundlauginni var mun kaldara en gengur og gerist hér heima. Margt fleira þótti hinum dönsku gest- gjöfum okkar við hæfi að sýna okkur, m.a. ráðhúsið þar sem tekið var á móti hópnum með nokkurri viðhöfn og var ekki að sjá að frjálslegur klæðaburður íslendinganna kæmi neinum til að hrökkva við. í elsta hluta bæjarins var hópurinn leidd- ur í gegnum nokkurs konar Árbæjarsafn. í einni minjagripaversluninni þar fundum við leirkrúsir með íbrenndum mannanöfn- um og það þótti heldur en ekki merkilegt að finna krús með sínu nafni úti i heimi og þótti slík krús sjálfsagður minjagripur. Farið var í skoðunarferð um höfnina í einum af lóðsunum sem okkur var tjáð að gerði slíkt sérstaklega fyrir okkur. En þá er rétt að víkja að íþróttahliðinni, við vorum þarna sem sé með frjálsíþróttafólk sem ið- aði í skinninu eftir því að fá að spreyta sig á danskri grund. Fyrri daginn fékk hópurinn að taka þátt í dönsku innanfélagsmóti sem fram fór á aðalvelli borgarinnar „AARHUS STADION”. Það kom í ljós að sumir voru sprækir og aðrir í rokna stuði þar á meðal var íris Jónsdóttir sem stökk 1,75 m sem er UMFÍ met. Meðal keppenda í hástökkinu var Danmerkurmeistarinn i hástökki kvenna en met hennar er 1,85 m. Að þessu sinni stökk hún 1,80 en átti ntjög góða tilraun við 1,86. Karl West sigraði í hástökki karla, í flóðljósum stökk hann 1,90 m. Það var mörgum nýnæmi á því að keppa á tartan-brautum og vöðvarnir ekki undir það búnir að meðtaka langtímaáreynslu. Rússneski þjálfarinn Bobrov sem með var í ferðinni var óþreytandi við að nudda og mýkja harða vöðva, jafnframt því sem hann gaf góð ráð og stjórnaði léttum æfing- um. Á öðrum degi dvalarinnar í Árósum æfði hópurinn með dönsku íþróttafólki á aðal- vellinum og nutu þar leiðsagnar danskra þjálfara. Um kvöldið átti svo hópurinn ánægjulega kvöldstund með danska Frá kcyptal á Aréwi lelfcrtngtimm. SKINFAXI 9

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.