Skinfaxi - 01.06.1979, Síða 8
Yfirforeldramir Heimir Steinsson og Dóra Þórhallsdóttir.
Viðtal við séra Heimi Steinsson:
Alþýðumenningin
sem verið er að
hefjatil vegs
Eftir að hafa rabbað við nemendur, göngum við
Jón til bústaðar rektors sem er skammt frá skóla-
byggingunni. Þegar við höfum gætt okkur á kræs-
ingum um stund er tekinn upp penni og blað og rekt-
orinn spurður um upphafsár skólans.
Það var byrjað 1972 og fyrstu árin var þetta rekið
sem tilraunastarf á vegum kirkjuráðs, en skólinn
hafði engan lagalegan grundvöll, heldur var hér að-
eins verið að fullnægja kirkjusjóðsákvæði og var
svo fyrstu fimm árin að kirkjan greiddi allan kostn-
að við reksturinn.. í upphafi gerðum við okkur von
um að sett yrðu lög um lýðháskóla, sem byggð væri
á sama grundvelli og almennt gerist á hinum Norð-
urlöndunum. Ég lagði strax 1972 ,drög að frumvarpi
um lýðháskóla fyrir þáverandi menntamálaráð-
herra, og þá voru góðir menn innan þings og utan að
vinnaað þessu.
í tíð Vilhjálms Hjálmarssonar menntamálaráð-
herra eru svo þessi drög dregin fram og afgreidd sem
lög 2. maí 1977 og komu svo til framkvæmda 1.
8
janúar 1978. Það má segja að það hafi verið nokkuð
dramatískt að 30. apríl 1977 þegar ég sleit hér skóla,
gat ég þess að drögin væru í meðferð þingsins eh
tveimur dögum seinna voru lögin afgreidd.
Skólinn er frjáls og utan kerfisins án prófa eh
studdur af ríkinu að langmestu leyti en kristinsjóður
greiðir það sem upp á vantar eða með öðrum orðum,
kennaralaun eru greidd að fullu af ríki og önnur út-
gjöld 80%.
Við fengum strax á fjárlögum '12 fjárveitingu til
byggingar hér og eftir það og fram til 1977 voru
þetta um 5 milljónir á ári. En hér var byrjað að
byggja 1970. Fyrsta veturinn, vorum við með skól-
ann í sumarbúðum þjóðkirkjunnar, sem eru hér
skammt frá, en næsta vetur var byggingin tekin í
notkun að hálfu, þ.e. skóli og mötuneyti en nemend-
ur sváfu niður í sumarbúðum. 1974 er svo byrjað hér
fyrir fullt og allt í nýja húsnæðinu.
SKINFAXI
Húsakostur — uppbygging
Frjáls og utan kerfis