Skinfaxi - 01.06.1979, Blaðsíða 10
Glíman
enn vinsæl?
Fimmtudagskvöldið 22. febr. 1979 var
háð kappglíma um svonefndan Kaup-
félagsbikar í félagsheimilinu Ásgarði í
Ásahreppi. Glimukeppni þessi er einn
þátturinn í samstarfi ungmennafélaganna
þriggja, hér á svæðinu milli Þjórsár og
Ytri-Rangár, og fór fram á svonefndri
fjölskylduskemmtun, sem haldin var
þetta kvöld.
Að þessu sinni voru keppendur 4, frá 2
félögum, 3 frá Umf. Ingólfi Holtahreppi
og 1 fráUmf. Ásahrepps. Þettaer íþriðja
sinn sem glímt er um þennan bikar, sem
Kf. Rang. á Rauðalæk gaf tíl þessarar
keppni og féllu vinningar þannig:
Elías Pálsson Umf. Ingólfi 3 v.
Ólafur Pálsson Umf. Ingólfi 2 v.
Guðjón Tómasson Umf. Ásahrepps 1 v.
Kristinn Guðnason Umf. Ingólfi 0 v.
Elías Pálsson hefur unnið bikarinn í öll
þjrú skiptin.
Þessi glímukeppni fór fram við þröngar
og og því ekki löglegar aðstæður, en samt
við fögnuð áhorfenda, því enn nýtur
glíman vinsælda meðal almennings, þótt
fáir fáist til þess að æfa og keppa.
Sunnudaginn 2. júlí 1978 var skjaldar-
glíma HSK háð að Laugarlandi í Holta-
hreppi. Þátttakendur voru 4, 3 frá Umf.
Ingólfi í Holtahreppi og 1 frá Umf.
Selfoss
Úrslit urðu þessi:
Ólafur Pálsson Umf. Ingólfi 3 v.
Hafsteinn Steindórsson Umf. Self. 2 v.
Elías Pálsson Umf. Ingólfi 1 v.
Kristinn Guðnason Umf. Ingólfi 0 v.
Ekki hefur verið glímt um Skarphéðins-
skjöldinn í nokkur ár, en aðalhvatinn að
því að nú var glímt um skjöldinn var sá,
að fyrir 10 árum síðan á 60 ára afmæli
Umf. Ingólfs í Holtahreppi gáfu 2 fyrr-
verandi félagar og skjaldarhafar, þeir
Skúli Þorleifsson Þverlæk og Steinn
Guðmundsson Mykjunesi, félaginu bikar
mikinn og fagran, sem verða skyldi glím-
unni til eflingar á félagssvæðinu.
Þannig að sá félagi Umf. Ingólfs sem
næst ynni Skarphéðinsskjöldinn í glímu,
og yrði þar með sá þriðji úr Umf. Ingólfi,
sem það íþróttaefrek ynni hlyti bikar
þennan til eignar.
Eins og áður segir var það Ólafur Páls-
son úr Umf. Ingólfi sem vann skjaldar-
glímuna að þessu sinni og hlaut því bikar
þennan til eignar, sem talinn er 2 kýrverð
að verðmæti.
Það má með sanni segja að bikar þessi
hafi orðið glímunni til eflingar og meiri en
gefendur óraði fyrir, þar sem hann varð
raunverulega til þess að endurvekja
keppni um Skarphéðinsskjöldinn.
Og verður hún vonandi ekki aftur látin
niður falla. Svo skemmtilega vildi til að
glimukeppni þessi var háð á 70. starfsári
Umf. Ingólfs, og af hreinni tilviljun á 65.
afmælisdegi Skúla Þorleifssonar, annars
gefenda bikarsins. K.J.
10
SKINFAXI