Skinfaxi - 01.06.1979, Side 16
Það var einu sinni kóngur sem átti allt,
sem hægt er að óska sér, nema eitt. Hann
átti ekki barn sem orðið gæti erfingi krún-
unnar eftir hans dag. En hann þekkti
þrjár dísir og dag nokkurn sendi hann
eftir þeim. Hann sagði þeim frá þvi hver
væri hans stærsta ósk, og dísirnar þrjár
lofuðu að óskir hans skyldu verða upp-
fylltar. Drottningin skyldi fæða barn og
dísimar myndu færa því gjafir. Níu mán-
uðum síðar varð mikill fögnuður í höll-
inni. Drottningin hafði eignast son og dís-
irnar færðu honum gjafir sínar.
Fyrsta dísin sagði: — Þú skalt verða
heimsins fegursti prins. önnur dísin
sagði: Að auki skalt þú verða réttlátur og
vitur. Þriðja dísin varð reið þegar hún
heyrði óskir dísanna, því nú gat hún ekki
fundið neitt gott í viðbót. Þess vegna
sagði hún: „Til þess að þú verðir ekki
drambsamur skulu vaxa asnaeyru á þig.”
Hún sveiflaði töfrastaf sínum yfir dreng-
inn og þótt kóngurinn bæði hana að taka
bölbæn sína aftur, var ekkert hægt að
gera. Dísirnar þrjár gengu burtu og fóm
til síns heima og skömmu seinna fóm að
vaxa asnaeyru úr höfði drengsins í stað
venjulegra eyma.
Veslings foreldrar hans gátu ekkert að-
hafst því til vamar. En kóngur ákvað að
enginn skyldi fá að sjá að drengurinn væri
með asnaeyru. Hann lét sauma húfu sem
skýldi eyrunum, hana mátti ekki taka af
drengnum hvort sem var á nóttu eða degi.
Drengurinn óx og varð fallegri með
hverjum degi sem leið og enginn vissi að
hann hafði eyru sem vom öðmvísi en á
öðm fólki. Dag nokkurn var hann orðinn
svo stór að tími var kominn til að klippa
hann. Var því sent eftir rakara, og kóng-
urinn sagði við hann: Ef þú segir einum
einasta manni frá því sem þú sérð undir
húfu prinsins, missir þú höfuð þitt. Rak-
arinn klippti og snyrti prinsinn. Harni
langaði óskaplega mikið til að segja frá
því sem hann hafði séð, en hann var líka
ánægður með lífið, og þess vegna sagði
hann ekki neitt. Dag einn hitti hann gaml-
an og virtan prest.
framhald í nœsta blaði.
16
SKINFAXI