Skinfaxi - 01.06.1979, Qupperneq 18
Pálmi Frímannssoru
íþróttameiðsli
EFTIRMEÐFERÐ OG
ENDURHÆFING
Eftirmeðferðina má hefja 2 sólarhring-
um eftir slysið og miðar hún að því að ná
fullum bata á sem skemmstum tíma og
halda þreki og kröftum eftir því sem
kostur er. Á þessu eru þó misjafnir mögu-
leikar. Við beinbrot á útlimum er t.d.
oftast nauðsynlegt að leggja gibsumbúðir
um lengri eða skemmri tíma og umbúðirn-
ar stöðva yfirleitt hreyfingu í a.m.k.
einum lið. Rýrna þá vöðvarnir sem hreyfa
þennan lið og liðurinn sjálfur stirðnar
óhjákvæmilega.
Við tognun á liðbandi eða vöðva er
tvennskonar meðferð beitt samtímis: hita-
meðferð og að teygja varlega á liðbandinu
eða vöðvanum. Mikilvægt er hinsvegar að
forðast öll snögg og harkaleg átök þar til
tognunin er að fullu gróin.
Hitameðferð á að gefa a.m.k. einu
sinni á dag í minnst 20 mínútur. Hana má
gefa á ýmsan hátt. Heit böð í vatni er ein-
föld aðferð og hægt að beita í heima-
húsum. Sömuleiðis má nota hitapoka eða
rafmagnspúða. Hljóðbylgjur er gott að
nota við meiðsl sem liggja djúpt og nálægt
beinum. Áhrifamesta hitameðferðin fæst
með áreynslu á allan líkamann, en þá
hækkar líkamshitinn allt upp í 39°C og
þykkir vöðvar hitna allir jafn mikið.
Áreynslan verður að vera þannig að ekki
reyni of mikið á meiðslin. Skokk, sund og
hjólreiðar henta best. Þannig má líka
varðveita þrek og þol að nokkru leyti þótt
reglulegar æfingar hætti í bili.
Eftir upphitun á að teygja á tognaða
liðbandinu eða vöðvanum þannig að dá-
lítill sársauki finnist. Þetta verður að gera
varlega til að auka ekki meiðslin og af
sömu ástæðu verður að forðast öll harka-
leg átök. Þessar teygjur gera örvefinn
minni, tryggja að nýir bandvefsþræðir
hafi rétta stefnu og hindra samvexti við
nærliggjandi líffæri. Svona samvextir
geta annars hindrað fullar hreyfingar og
valdið langvinnum eymslum í kringum
tognaða liðbandið.
Gott er á þessum tíma að nota stuðn-
ingsumbúðir til að hindra frekari meiðsl
við harkalegt álag. Venjuleg teygjubindi
gera mikið gagn. Einnig eru til teygjuum-
búðir sem eru límdar á húðina og haggast
þannig síður. En miklum vinsældum
njóta líka teygjulaus límbönd (,,teip”)
sem sett eru á meidda útlimi. Þessi teygju-
lausu bönd eru þunn og fyrirferðarlítil og
hindra t.d. ekki notkun á neinum skóm.
Á þeim er sterkt lím sem ertir húðina dá-
lítið.Þessvegna er ekki hægt að hafa þau
á húðinni samfellt nema 2—3 sólarhringa.
íþróttamenn setja þau gjarna á sig rétt
fyrir æfingu eða keppni og taka þau aftur
af um leið og þeir fara í bað. Ég hef
nokkrum sinnum lagt slíkar umbúðir á í
vikutíma samfellt, en nota þá grisjusokk
undir þær. Þær virðast engu að síður gera
mikið gagn, en erta þá ekki húðina.
Meginreglan er að leggja þessi teygju-
Iausu bönd samsíða meidda liðbandinu,
þannig að þau komi i staðinn fyrir það.
En til að festa umbúðirnar vel þarf að
18
SKINFAXI