Skinfaxi - 01.06.1979, Síða 19
leggja þær eftir ákveðnum reglum og er
það nokkurt vandaverk. Það er erfitt að
lýsa því í smáatriðum í rituðu máli, og ég
læt nægja að vísa á Þækling sem nefnist
„Taping av idrettskader” og er gefinn út
af norska íþróttasamþandinu. Rétt er þó
að minnast á 3 atriði:
Ekki má leggja svona umþúðir á ný
meiðsl. Það verður alltaf að nota teygju-
umþúðir fyrstu 2 sólarhringana, annars
getur blóðrásin stöðvast. Af sömu ástæðu
má ekki vefja nema einn hring um útlim í
einu. Síðan á að rífa bandið í sundur.
Ekki má skína í húðina gegnum göt á um-
búðunum því þá geta dottið á hana sár.
Algengt er að iþróttamenn, sem hlotið
hafa varanlegar skemmdir á liðböndum,
notið þessi bönd að staðaldri við æfíngar
og keppni til að fyrirbyggja nýja tognun.
Hægt er að hefja æfingar af fullum
krafti eftir slys, þegar hægt er að teygja
að fullu á liðbandinu eða vöðvanum án
sársauka og þegar full hreyfing er komin á
liðamót. Ekki má þó vera óeðlilegt los á
liðnum. Hægt er að hefja keppni á ný,
þegar allir vöðvar hafa fengið fulla
krafta. Mikilvægt er að sýna þolinmæði
og keppa ekki fyrr en meiðslin hafa jafn-
að sig að fullu, annars er hætta á að þau
taki sig upp á ný.
ÁLAGSSJÚKDÓMAR
Það eru meiðsli, sem ekki koma við eitt
snöggt átak, heldur við endurtekið eða
langvinnt álag eða hreyfingar.
Sinaskeiðabólga í úlnliðum er eflaust
best þekkt. Hún kemur helst ef menn
vinna lengi verk sem þeir eru óvanir og
sem reynir mikið á hendurnar. Meðferðin
er einkum hvíld, sem hægt er að fá með
bví að vefja úlnliðina og minnka þannig
hreyfínguna í þeim. Bólgueyðandi lyf
hjálpa líka í byrjun.
Vöðvabólga er annarskonar álagssjúk-
Pálmi Frímannsson héraðslæknir.
dómur, sem ekki kemur af of mikilli
hreyfingu, heldur þvert á móti af því að
halda vöðvum spenntum í sömu stellingu í
langan tíma. Algengast er þetta hjá fólki,
sem vinnur eitthvert verk í höndunum í
langan tíma samfleytt, en það fær vöðva-
bólgu í herðar og háls. Hægt er að fyrir-
byggja sjúkdóminn að verulegu leytí með
því að hreyfa axlir og höfuð reglulega 2—
3var á klukkustund, herpa vöðvana
saman og sérstaklega að teygja rækilega á
þeim. Meðferðin er fólgin í upphitun eins
og við tognun og síðan á að teygja vel á
aumu vöðvunum. Harðsperrur, sem
íþróttafólk fær stundum eftír æfingar og
keppni er svipað fyrirbæri og svarar sömu
meðferð. Bólgueyðandi lyf eiga þar ekki
við en önnur verkjalyf hjálpa.
Eymsli yfir sinafestum eru nokkuð al-
geng sem atvinnusjúkdómur, en koma
líka oft hjá íþróttafólki. Þau koma við
endurtekin snögg og hörð átök. Þannig fá
t.d. tennisleikarar oft eymsli við olnboga-
lið og langhlauparar fá oft eymsli utan-
vert á hné. Þetta á að meðhöndla með
hvíld og æfingum á svipaðan hátt og við
skinfaxi