Skinfaxi - 01.12.1981, Blaðsíða 3
SKINFAXI
6. tbl. — 72. árg. — 1981
ÁSKRIFTARVERÐ:
50 kr. árgangurinn.
*
ÚTGEFANDI:
Ungmennafélag Islands.
RITSTJÓRI:
Steinþór Pálsson.
RITNEFND:
Pálmi Gíslason, ábm.
Diðrik Haraldsson.
Sigurður Geirdal.
Finnur Ingólfsson.
AFGREIÐSLA SKINFAXA:
Skrifstofa UMFÍ.
Mjölnisholti 14, Reykjavík.
Sími 14317.
SETNING OG UMBROT:
Leturvalsf, Armúla36.
OFFSETPRENTUN:
Prentval sf., Súðarvogi 7.
*
Meðal efnis:
Fréttir frá HSH.................. 4
Bridge........................... 5
UMSK-mót í knattspyrnu........... 6
Af útgáfustarfi.................. 7
Viðtal viö Johannes Sigmundss. .. 8
íþróttabúðir HVÍ ............... 12
NSU-vikan....................... 14
Formannskynning Skinfaxa ....... 20
Nokkrar línur frá HSH ......... 22
Handknattleikur ungm.félaganna . 24
Viðtal við Jón Inga Ragnarsson. 26
Knattspyrnumót Suðurlands ...... 32
Vísnaþáttur Skinfaxa ............33
Iþrótta- og félagsstarfið í tölum. 35
Þrastaskógur.................... 36
Átak gegn áfengi................ 38
Inni í blaöinu er m.a. viðtal viðjón
Inga Ragnarsson formann knatt-
spyrnudeildar UBK. I því tilefni birt-
um við á forsíðu mynd af ungum knatt-
spyrnumanni úr Breiðablik, Helga
Bentssyni.
Erlend samskipti
Erlend samskipti hafa alla tíð verið einn af þáttum félags-
starfsins hjá UMFÍ, allt frá 1908 er 7 glímumenn fóru á
Olympíuleikana í London til dagsins í dag. Fyrir 10 árum
hófust mikil samskipti UMFÍ við NSU (Nordisk samorganisa-
tion for ungdomsarbejde). I þessum samtökum eru 13, félaga-
samtök frá Norðurlöndunum sem flest reka svipaða starfsemi
og UMFI. Einn skemmtilegasti þáttur þessa samstarfs eru
Ungmennabúðir sem haldnar eru árlega, til skiptis í löndun-
um. Tuttugu ungmenni koma frá hverju landi eða alls 100
manns. Þessar vikur hafa alltaf verið mjög eftirsóttar, þar
hefur skapast mikil stemming og góð kynni. Þátttakendur
héðan hafa ætíð látið mjög vel að þessum ungmennabúðum,
Þar hafa skapast góð kynni. Ungt fólk hefur kynnst hugmynd-
um og starfsháttum á hinum Norðurlöndunum. Norræn sam-
vinna er okkur mikil virði, þar erum við í hópi vina. Röðin er
nú komin að Islandi í annað sinn. Samkvæmt sérstökum
óskum eru Ungmennabúðirnar lengri hér á landi en á hinum
löndunum. Ferðin hingað er dýr og því vilja þátttakendur fá
nokkurn tíma til að kynnast landinu.
íþróttamiðstöðin á Selfossi mun hýsa þessa samkomu sem
verður 9.— 18. júlí n.k. Margt verður tckið fyrir á þessari viku,
þjóðdansar, þjóðlög, lciklist, náttúruskoðun o.ll. Höðuðverk-
eíni verða Norðurlöndin — æskan — orkumál. Verðurþátttak-
endum kynnt hvernig vatnsorka og varmi eru notuð hér á
landi. Þátttakendur hafa óskað eftir því að fá að kynnast
liskverkun, reyna íslenska hestinn og jafnvel að sjá eldfjall í
fullum gangi. Reynt verður að verða við óskum þátttakenda,
þó síðasti þátturinn sé nokkuð vafasamur. Selfoss er ákaflega
vel fallin til slíkra starfsemi, stutt lil allra þeirra þátta er
áhugi þátttakenda virðist beinast að. Ýmsir fyrirlestrar og
kynningar verða á dagskrá. Við munum að sjálfsögðu leita til
ýmissa HSK manna mcð aðstoð í þeim efnum. Munu þeir
vafalaust reynast okkur vel nú sem endranær.
Það er von stjórnar UMFÍ að þessar ungmennabúðir megi
verða til fyrirmyndar og öllum er að þeim standa til ánægju.
íslandi allt.
PG.
SKINFAXI
3