Skinfaxi - 01.12.1981, Síða 10
við peningahrúguna, sem hafði
komið í aðgangseyri, og töldum
stóra seðla og smáa. Þá var nú létt
yfir gjaldkeranum.
Loks vil ég minnast á Lands-
mótið á Selfossi 1978. Þá var ég
formaður landsmótsnefndar en
framkvæmdastjóri þess móts var
Guðmundur Jónsson, núverandi
formaður HSK. Það er mikið starf
að halda landsmót og að mörgu að
hyggja en ánægjulegt ef vel tekst
lil. Þá verðurferðin á landsmótiðí
sumar á Akureyri með HSK lið-
inu ógleymanleg og mótið allt.
Pú hejur einnig tekið að þér ýmis
störffyrir UMFÍ?
I sex ár sat ég í varastjórn
UMFI og sótti stjórnarfundi að
staðaldri sem fyrsti varamaður.
Árið 1976-80 sat ég í stjórn NSU
þ.e. Nordisk Samorganisation for
Ungdomsarbejde, sem fulltrúi
UMFL Það var einnig mjög á-
nægjulegt. Þar kynntist ég æsku-
lýðsleiðtogum frá hinum Norður-
löndunum og viðhorfum þeirra til
ýmissa mála ogátti þess jafnframt
kost að ferðast talsvert til Norður-
landa og um þau. Eg hef einnig
setið mörg þing og fundi á vegum
ÍSÍ og kynnst mörgum á þeim
vettvangi. Mér er ofarlega í huga
þakklæti til allra þeirra mörgu
sem ég hef starfað með innan
UMFÍ og ÍSÍ. Ekki svo að skilja,
að ég sé neitt að kveðja í þeim
samtökum, en félagsstörfin hafa
beinst nokkuð í aðra átt í seinni
tíð. Eg hef lent í störfum í samtök-
um kennara og er nú formaður
Kennarafélags Suðurlands og á
sæti í fulltrúaráði Kennarafélags
íslands.
Að lokum Jóhannes, nú hejur þú á
mörgum þingum UMFI kastað Jram
vísum semjleygar haja orðið, og mér er
kunnugt um að þú hejur ort við Jleiri
ttekijæri. Hvemig væri að Já eina í
lokin.
Eg hej eitt og annað gert
sem á var minnst að Jraman.
En það er tœþast þakkarvert,
þetta varsvo gaman.
P.G.
Jóhannes í stjórn UMFÍ ásamt Sigurði R. Guðmundssyni, Hafsteini Þorvaldssyni,
Guðjóni Ingimundarsyni, séra Eiríki Eiríkssyni og Armanni Péturssyni.
Jóhannes átti sæti í stjórn NSU og er þarna ásamt þeim sem voru tneð honum
stjórn.
10
SKINFAXI