Skinfaxi - 01.12.1981, Side 17
Dönsk stúlka, Bodil, leiðbeindi í mál-
arahópnum.
eða út í skóg. Ekki verður skilið
við þessa dásamlegu nætur án
þess að minnast ýmissa tveggja og
tveggja sem hurfu sjónum ann-
arra um lengri eða skcmmri tíma.
Því ástin blómstraði í ríkum mæli
í Skyum.
Ymsir gætu ályktað af því sem
framan er skráð að dagskráin haíi
verið ströng og erfið. Vaði einhver
í þeirri villu er rétt að taka það
fram, að hún var mjög vel skipu-
lögð með hæfilega löngum atrið-
um og góðum hvíldum. En um-
fram allt skemmtileg og hæfilega
laus í reipum t.d. þegar veðrið var
óvenju gott var gefið frí frá skipu-
lagi, en veðrið var það eina sem
„brást” okkur en ekki þýðir að
tauta um það.
En snúum okkur nú að því sem
ekki var inni í daglegri rútínu. Þá
er fyrst að nefna langa rútuferð
sem stóð allan þriðja daginn og
var víða komið við s.s. í Víborg
þar sem við fengum góðan tíma til
innkaupa eða hvers annars sem
við vildum.
Síðan var rcnnt up|t að íþrótta-
kennaraskóla þar í nágrenninu og
hann skoðaður af miklum áhuga.
Afram var ekið vítt og breitt og
mannvirki allt frá félagsmiðstöð
til grafhaugs gegnumlýst.
Að endingu höfnuðum við í
Billund þar sem spásserað var um
Lególand og kvöldmatur snædd-
ur.
Á eftir skiptum við okkur í fjög-
urra manna hópa ca. einn frá
hverju landi, var síðan farið í
heimsókn inni á heimili þar sem
við dvöldumst við rómgóðar veit-
ingar drjúga stund áður en ekið
var heimleiðis. Þangað brunuð-
um við í einni striklotu, aðeins
einu sinni var stoppað til að pissa.
Flestum fannst ferðin helst til
löng enda var farið að hátta undir
lokin. Þó kom það ekki í veg fyrir
að harkalið mótsins hélt uppi fjöri
langt fram á nótt.
Á fjórða degi kom stúlknafót-
boltalið frá nágrenninu í heim-
sókn og háði leik við stúlkur okk-
ar. Rétt er að taka fram að heima-
liðið naut fulltingis pilts frá Suð-
urslésvík sem stóð í markinu.
Gestirnir sigruðu með einu marki
gegn engu og segja má að úrslit
hafi verið sanngjörn.
Víkjum nú að kvöldvökunum
aftur því ekki verða þær nefndar
án þess að minnast einnar norskr-
ar stúlku sem ásamt fararstjóra
sínum söng „Kjerlinghetsvisen”
bjartri og heillandi röddu sem
bræddi hjörtu allra viðstaddra.
Viðlag söngsins: „Ingen er sá god
som du”, varð að einkunnar orð-
um mótsins og meinti þá hver sína
eftirlætisfélaga.
Síðasta daginn fengu þátttak-
endur að gera tillögur um næstu
ungmennaviku, sem verður hér á
klakanum næsta sumar, og um
kvöldið var veisla með skemmti-
atriðum sem við sjálf sömdum og
framkvæmdum og loks var slegið
upp því mesta stuðballi sem sögur
fara af. Auðvitað hlaut því að
ljúka um síðir en hver nennti að
sofa á slíkri nóttu?
Þótt tónlistin þagnaði hélt fjör-
ið áfram fram undir morgun.
Hápunktur næturinnar var
fjöldabrúðkaup þar sem pör
mótsins voru umvörpum gefin
saman. Þá leit dagsins ljós fyrsta
Norska hóp-sex hjónabandið svo
eitthvað sé nef'nt.
Að endingu rann síðasti morg-
Þátttakendur eiga audvelt med aö kynnast innbvrðis. Þarna er íslenskur piltur og
stúlkur frá Noregi og S-Slésvík.
SKINFAXI
17