Skinfaxi - 01.12.1981, Qupperneq 22
Jóhanna Leopoldsdóttir formaöur HSH gengur frá grein-
inni.
Nokkrar línurjrá
HSH
að liðnu skemmtilegu
sumri
Frjálsar, sund o.fl.
Helgina 27.-28. júní var lialdið
Héraðsmót í öllnm aldursflokkum
Irjáls íþrótta hjá HSH. Mótið var
um leið vísir að fjölskylduhátíð og
voru saman komnir í Stykkis-
hólmi þessa helgi hátt í þrjú
hundruð manns og skemmti sér
hið besta. Arangra af'mótinu var
getið í 5. tlb. Skinfaxa.
Eftir þetta mót hófst lokaundir-
búningur fyrir Landsmótið á Ak-
ureyri. Þangað fór um fimmtíu
manna hópur frá HSH þræl á-
nægður með sig í nýjum íþrótta-
göllum. Það hjálpaðist allt til að
gera ferðina eftirminnilega, góðar
móttökur á Akureyri, veðrið gott
og hópurinn samstilltur og
skemmtilegur.
Sundmót voru haldin á vegum
HSH í sumar með ágætum ár-
angri en skortur á jarðhita gerir
sundiðkendum erfitt fyrir á Snæ-
fellsnesi.
HSH tók þátt í Islansmeistara-
mótinu, öllum aldursflokkum og
Bikarkeppni FRÍ 2. deild. I end-
aðan ágúst fór svo frjálsíþrótta og
sundlið yngra en 16 ára suður í
Borgarnes í svttkallaða Snæborg-
arkeppni, þar sem keppt er við
UMSB ýmist á heimavelli eða í
Borgarfirði.
Knattspyrnan vinsæla
Héraðskeppni í knattspyrnu fór
fram í 3., 4., 5. og meistaraflokki.
Knattspyrna nýtur mikilla vin-
sælda hér á Nesinu, fimm félög
tóku þátt í keppninni. Verðlauna-
afhending í 3., 4., og 5. fl. fór fram
á unglingadansleik sem HSH
gekkst fyrir í Grundarftrði í end-
aðan ágúst við mikinn fögnuð við-
staddra.
Hitt og annað merki-
legt
HSH hefur hvatt félögin til að
halda félagsmálanámskeið, tvö
Sundlið HSH á Snæborgarmótinu.
22
SKINFAXI