Skinfaxi - 01.12.1981, Síða 24
Handknattleikur
ungmennafélaganna
Hér á eftir gefur að líta greinar-
korn um þátttöku sambandsaðila
UMFI í Islandsmótinu í hand-
knattleik.
Iðkendum í handknattleik fer
sífellt (jölgandi hjá aðildarfélög-
um UMFI. A síðasta vetri voru
iðkendur um þrjú þúsund talsins.
Að öllum líkindum eru þeir lleiri
nú þar sem fleiri sambandsaðilar
taka þátt í íslandsmótinu en í
fyrra.
Iðkendur s.l. vetur voru hjá
UMSK um 900, hjá ÚÍA tæplega
600 og hjá HSK rúmlega 400 en
hjá öðrum samböndum mun
færri. fjöldinn hjá UMSK er fyrst
og fremst vegna íþróttahúsanna á
svæðinu.
Það kemur á óvart þegar born-
ar eru saman tölur um iðkendur
hjá konum og körlum að karlar er
um 300 fleiri. Lengi hefur verið
álitið að konu iðkuðu íþróttina
meira hjá aðildarfélögum UMFÍ
en karlar. A landsmótum UMFÍ,
sem eiga að sýna þverskurð af
starfi félganna, hefur því einungis
veið keppt í handknattleik
kvenna. Því vaknar sú spurning
hvort ekki sé tími til kominn að
keppt verði í handknattleik karla
á landsmóti.
Það sem stendur íþróttinni
aðallega fyrir þrifum úti á landi er
hversu fá nægilega stór íþróttahús
eru fyrir handknattleik.
Þeim félögum sem senda lið til
keppni í íslandsmóti HSÍ fer allt-
af íjölgandi og eru nú 14 af aðild-
arfélögum UMFÍ sem taka þátt í
því móti.
En lítum aðeins að þessi 14 lið
og byrjum á UMSK. Það eru
fimm innan þess sambands sem
taka þátt í mótinu; HK, UMFA,
UBK, Umf. Stjarnan og Grótta.
Handknattleikslclag Kópavogs
sendir alla llokka til keppni í ís-
landsmótið. Meistarafl. karla
leikur í 1. deild eitt aðildarfélaga
UMFÍ og er það mjög góður ár-
angur í hinni hörðu deildakeppni
og hjá ekki eldra félagi. HK vann
mjög gott afrek fyrir nokkrum ár-
um er þeir sigruðu III. deildina
og árið eftir II. deildina og voru í
því komnir upp í þá I. með aðeins
eins ár stoppi í II. deildinni.
Ungmennafélögin Afturelding
úr Mosfellssveit, Breiðablik í
Kópavoginum og Stjarnan úr
Garðabænum leika öll í II. deild-
inni í m.fl. karla. Oll þessi félög
cru tiltölulega ný komin upp úr
III. deild. Stjarnan lék þar á síð-
asta keppnistímabili og sigraði
dcildina glæsilcga. Ekki er ólík-
legt að eitthvert af þessum félög-
um leiki í I. deildinni næsta vetur.
Þessi félög þurfa ekki að örvænta
um framtíðina þar sem vel cr búið
að yngri flokkunum. íþróttahús
24
SKINFAXI