Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.1981, Síða 25

Skinfaxi - 01.12.1981, Síða 25
eru í Mosfellssveit og Garðabæ og verið er að byggja íþróttahöll í Kópavoginum. III. deild kvenna leika lið frá öllum þessum félögum og einnig senda þau lið í alla yngri kvenna flokkana. Iþróttafélagið Grótta, Seltjarn- arnesi, leikur í III. deild en var fyrir nokkrum árum í I. deildinni. Félagið missti mikið af mannskap á stuttum tíma og féll úr þeirri deild. A undanförnum árum hef- ur félagið verið að byggja upp nýj- an m.fl. og er nú líklega ekki langt í að þeir komist upp í II. deild. Líkt og hjá hinum félögunum inn- an UMSK eru þeir með alla flokka í Isl.mótinu nema þeir eru ekki með m.fl. kvenna. Innan UMSB er eitt félag sem sendir lið í Islandsmótið, Umf. Skallagrímur Borgarnesi. I ár senda þeir í fyrsta skipti lið í deildakeppnina og leika þeir í 111. deild. Auk þess leika 3. og 4. fl. karla í mótinu. I Borgarnesi er nýtt íþróttahús og því líklegt að þeim takist að byggja upp hand- knattleikinn þar. Hjá UMSE er það Umf'. Svarf- dæla Dalvík, sem sendir lið í Is- landsmótið. Lið félagsins í m.fl. leikur í III. deildinni og hefur gert svo um nokkura ára skeið. Þá leika 4. og 5. fl. félagsins einnig í mótinu. X’ölsungur, Húsavík sendir 2. og 3. 11. kvenna í mótið og er það minni þátttaka en oft áður. Það kemur á óvart að þeir eru ekki með m.fl. kvenna í mótinu. A landsmótum UMFÍ hefur HSÞ átt hörkukvennaliði á að skipa sem hefur verið myndað úr Völs- ungi. Handknattleiksmcnn á Húsavík búa við slæma aðstöðu þar sem íþóttahús þeirra er lítið, en von er á nýju húsi. Hjá LIIA er, eins og áður hefur komið fram, mikill fjöldi hand- knattleiksiðkenda. Þessi fjöldi skilar sér ekki með þátttöku í Is- landsmótinu því það eru aðeins tvö félög, Þróttur Neskaupstað og Huginn Seyðisfirði, sem taka þátt í mótinu. Hvort lið sendir 2. og 3. fl. kvenna í mótið. Fleiri félög stunda íþróttina á Austfjörðum og voru t.d. fimm félög er tóku þátt í síðasta héraðsmóti þeirra. Þar var keppt í þrem flokkum bæði karla og kvenna. Á Höfn í Hornafirði er nýtt íþróttahús. Þar starfar Umf. Sindri sem tekur nú þátt í Isl.mót- inu 2. og 3. fl. kvenna. Líklegt má teljast að þeir sendi fleiri llokka á næstu árum þegar þeir hafa æft upp íþróttina. Umf. Selfoss er eina aðildarfé- lag HSK sem tekur þátt í Isl.mót- inu. Að öllum líkindum er stutt í að Hvergerðingar sendi einnig einhverja flokka í mótið þar sem þeir hafa byggt íþróttahús. A Sel- fossi er góð aðstaða fyrir hand- knattleik og mikil gróska í honum. Meistaraflokkur karla spilar nú að nýju í III. deildinni, þeir tóku fyrst þátt í henni fyrir tveim árum en voru ckki með á sl. vetri. M.fl. kvenna leikur í II. deildinni og einnig senda þeir alla yngri flokka í mótið, þannig að handknattleik- ur virðist hafa skipað sér fastan sess í íþróttum bæjarins. Umf. Grindavíkur sendir ein- ungis kvennaflokka í mótið, m.fl. sem leikur í II. deild og 2. og 3. fl., enda er aðstaðan ekki góð fyrir handknattleik. I Njarðvík er aftur á móti ágæt aðstaða en ungmennafélagið á staðnum sendir nú aðeins yngsta II. í mótið 3. og 4. fl. karla og 2. og 3. fl. kvenna. Þessir tveir bæir eru etv. í sérstöðu þar sem körfuknatt- leikur hefur mikið forskot á hand- knattleik og á hann því í vök að verjast. Þá hefur verið fjallað lítillega um þau 14 félög sem taka þátt í Islandsmótinu. Mun fleiri félög um allt land leggja stuncl á hand- knattleik sem t.d. kemur glöggt fram á landsmótum UMFI. Einn- ig er.að sum félög geta ekki ráðið við þann gífurlega kostnað er fylg- ir að senda íþróttahópa í aðra landshluta til keppni. Vonandi er að nógu mörg félög taki þátt í mótum þannig að hægt sé að skipta þcim eftir landshlutum í ríkara mæli en nú er. S.P. Meistarafl. HK sem nú spilar í I. deild SKINFAXI 25

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.