Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.06.1987, Blaðsíða 13

Skinfaxi - 01.06.1987, Blaðsíða 13
Húsavík „Héma verður ykkar fólk”, Guðni Halldórsson, framkvæmdastjóri Landsmóts '87, bendir mönnum á Framkvæmdastjóranámskeiði yfir á tjaldstæði á Húsavík. F. v., Gunnlaugur Aðalbjömsson, framkvæmdastjóri UNÞ, Björn Þór Jónsson, UNl’, Diðrik Haraldsson, stjómarmaður í UMFÍ, Rögnvaldur Gíslason, formaður HSS, Hrafnkell Kárason, stjórnarmaður í UÍA og Guðni Halldórsson. Myndir, IH. “Flest allar áætlanir virðast ætla að stan- dast þannig að við á Húsavík erum tilbú in að taka á móti landanum.” Hluti af undirbúningi hcraðssambanda um allt land er að senda framkvæmdastjóra sína og formenn á Landsmótsstað nokkru fyrir Landsmót til að skipulcggja síðasta sprettinn fyrir Landsmót. í ár var slíkur fundur á Húsavík um Hvítasunnuhelgina. Skin- faxi var með í för og skoðaði aðstæður undir handleiðslu Guðna Halldórssonar. Ekki var annað að sjá en allur undirbúningur gengi vel. Það sem vakti að sjálfsögðu mesta athygli var hið nýja íþrótlahús Húsvíkinga sem er hið glæsilegasta í alla staði. Sannast á því húsi að Landsmótið er lyftistöng fyrir allt íþróttalíf á mótsstað. Þá höfðu Húsvíkingar greinilega lagt sig í líma við að snyrta hinn annars fagra bæ sinn. “Litlu Ólympíuleikamrir” eru sem sagt að ganga í garð með miklum glæsibrag. Gleðilegt Landsmót! IH SKINFAXI 13

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.