Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.06.1987, Blaðsíða 28

Skinfaxi - 01.06.1987, Blaðsíða 28
LANDSMÓTSSPÁ Borðtennis Sigur til Suöurnesja Ritstjóri Skinfaxa fór þess á leit við mig að skrifa Landsmótsspá í borðtennis. Það er ckki heiglum hent fyrir mig að skrifa slíka spá, því ég hef ekki komið nálægt Landsmóti áður. Þar að auki hef ég ekki nöfn keppenda í höndunum. Hins vegar er ég frá suð- vestur horni landsins en þar hefur borðtennis verið stundað sem íþrótlagrcin í nokkuð mörg ár. Ég tel að á landsbyggðinni, í þorpum og bæjum, hafi borðtennis til þessa aðallega verið stundað sem afþreying en ekki sem viðurkennd íþróttagrein. Þess vegna hefur borðtennis ekki átt eins miklum vinsældum að fagna á landsbyggðinni og á suð-vestur hominu. Þetta stendur hins vegar til bóta því framtakssamir einstak- lingar á landsbyggðinni hafa óskað eftir því að fá leiðbeinendur til að kenna undirstöðuatriðin í borðtennis. Það hefur verið tekið vel í þessa málaleitan og leiðbeinendur hafa farið út á landsbyggðina til þess að kenna ungu fólki. Við vitum að slíkt virkar scm vítamínsprauta á allar íþróttagreinar í landinu, ég tel afar nauðsynlegt að borðtennis verði viðurkennt sem íþróttagrein á öllu landinu og að ung- Sighvatur Karlsson. menna- og íþróttafélög um land allt st- ofni borðtennisdeildir innan sinna félaga. Með góðu samstarfi við félögin á suð-vestur horninu ætti vegur borð- tennisfþróttarinnar að verða mikill á komandi árum. En hér er spáin. í fyrsta sæti set ég UMFK. Keflvíkingar mæta væntanlega mcð harðskeytt lið að venju sem erfitt verður við að etja, sérstaklega fyrir þá sem ég spái að komi í næsta sæti en það er UMSK. Þar er Stjaman í broddi fylkin- gar. En Stjömuhröp verða stundum eins og hendi sé veifað. Ég spái því að HSÞ veiti þeim harða keppni cf vindur- inn fer ekki úr þeim. Ég spái þeim samt þriðja sæti. UMSE verður í fjórða sæti, á eftir Þingeyingum. Eyfirðingar gera sér nefnilega ekki grcin fyrir því að Þingey- ingum hefur bæst liðsauki úr mjög óvæntri átt, að ofan. Önnur keppnislið verða í fimmta til tíunda sæti. Mætið nú öll í íþróttahús Bamaskólans á Húsavík, föstudags- morguninn 10. júlí. Sjáumst. Pennavimr Af og lil berast bréf til UMFÍ og Skinfaxa frá ungu fólki crlendis frá (fyrst og fremst frá Norðurlöndunum) þar sem beðið er um aðstoð við að finna pennavini. Þessar beiðnir hafa verið birtar í Skinfaxa af og til. Hér koma fleiri, að þessu sinni frá Svíþjóð, frá Lottu og Önnu Karin. Þær eru greinilega vinkonur, eiga heima í sömu götu í bænum Taberg í Svíþjóð Halló. Ég heiti Lotta, 13 1/2 árs, og leita að útlcndum pennavinum. Helstu áhugamál mín eru dýr (ég á hund og fugl) og böm. Elsku bestu, skrifið nú. Þið eigið helst að vera á aldrinum 12 til 15 ára. Heimilisfang mitt er: Lotta Rosén Malmgatan 37 56202 Taberg Sverige Halló. Ég heiti Anna-Karin, er 13 ára og vildi gjaman fá pennavini erlendis frá. Heimilisfang mitt er: Anna-Karin Gustavsson Malmgatan 19 56202 Taberg Sverige P.S. Ég get skrifað á ensku. Bless á meðan. 28 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.