Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.06.1987, Blaðsíða 36

Skinfaxi - 01.06.1987, Blaðsíða 36
Leiðtoganámskeið , Rætt við einn þátttakenda “Akvaö að prófa Hún heitir Helga Guðmunds- dóttir, er úr Dölunum og segist hafa dottið inn í Leiðtoganámskeiðið, næstum fyrirtilviljun. Helgahefur verið í í})róttum en lítið starfað að félagsmálum í ungmcnnafélögum, ákvað samt að prófa. “Félögin innan UDN gátu valið krakka úr sínum röðum á námskeiðið og ef einhver sendu ekki fulltrúa mátti koma varamaður frá öðru félagi. Pannig kom ég inn í þctta námskeið, sem eins konar varamaður. Ég er svona að prófa, sé síðan til hvort ég get unnið félaginu eitthvert gagn.” Þegar ég ræddi við Helgu var hún í hléi námskeiðs hjá Sigurði Þor- steinssyni, framkvæmdastjóra UMFÍ. Hann var að fara y fir fundarsköp og fleira ásamt Diðriki Haraldssyni, stjómar- manni í UMFÍ. “Ég hef aðeins unnið að félagsmálum í skólanum”, segir Helga, Kynntu þér APEX-fargjöldin í innanlandsflugi Flugleiða hjá næstu söluskrifstofu félagsins, umboðsmanni eða ferðaskrifstofu. FLUGLEIDIR Helga E. GuðmundsdóUir. “en annað ekki. Hér fáum við meðal annars þjálfun í að standa upp frammi fyrir hópi manna og tjá okkur. Einnig kynnumst við almennum fundarsköpum og skipulagningu þeirra. Ég hef haft mjög gott af þessu. Það er allt of lítið um svona lagað í skólanum, þannig að þctta hefur verið mjög gagnlegt.” -Varstu með köggul í maganum þegar þú stóðst upp? “Já, það var ekki laust við það. En þetla var bara spuming um að brjóta ísinn. Þetta hefur verið virkilega skemmtilegt.” IH 36 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.