Skinfaxi - 01.12.1988, Síða 4
Ingólfur Hjörleifsson
• •
Oll gerðu þau
sitt besta
Þá er viðburðaríkt ár að renna sitt skeið á
enda. Ar sigra og ósigra, segja menn oft.
Mikið hefur verið rætt og ritað um eina þá
stærstu viðburði á íþróttasviðinu sem áttu
sér stað, nefnilega Ólympíuleika fatlaðra og
ófatlaðra í Seoul í S-Kóreu. Oftast er talað
um sigur í því fyrra og ósigur í síðara tilfell-
inu.
Þetta með ósigurinn er auðvitað mikil
einföldun. Eins og íris Grönfeldt rekur á
hreinskilinn og skýran hátt í viðtali í Skin-
faxa að þessu sinni, voru hlutimir skoðaðir
mjög einhliða. í huga þeirra sem hæst létu
var það ósigur og mikil vonbrigði, áfall og
svo framvegis, að ekki skyldu neinir íslend-
ingar ná upp í að minnsta kosti 5. sæti í sinni
grein. En gefum írisi orðið með dæmi úr
hennar grein.
„ Þegar fólk var að tala um að mörg okkar hefðu
valdið miklum vonbrigðum gleymir það því að það
var fjöldi íþróttamanna frá íþróttastórveldum, sem var
inni á topp 10 en komst ekki í úrslit. Þetta kom ekkert
fram í fjölmiðlunum hér. það vorum bara við sem
vorumað„klikka.” Þaðmánefnafjöldanafna. Heims-
meistara og heimsmethafa. Til dæmis í spjóti kvenna.
Besti kven-spjótkastari Norðurlanda, Trine Solberg
frá Noregi, komst ekki úrslit íSeoul. Þarkastarhún 57
metra. Hún á hins vegar 69 metra best og 67 metra í ár.
En hún er auðvitað verðugur þátttakandi frá sinni þjóð.
Svogetum viðnefnt Finnana. TinaLillak,fyrrverandi
heimsmeistari og heimsmethafi. Hún var rétt fyrir
leikana búin að kasta 74 metra. Hún komst ekki í úrslit.
Tula Laksola sem var búin að vera í úrslitum í öllum
helstu stórmótunum, hún komst ekki heldur. Þetta
gerist í næstum öllum greinum og er ekki endilega
spumingin um að „klikka”."
Svo mörg voru þau orð. Ogaðsönnu. Við
verðum að líta á hlutina í samhengi. Verum
stolt af því fólki sem gerir sitt besta, burt séð
frá því hvort það vinnur til verðlauna eins og
fötluðu Ólympíufaramir okkar gerðu reyndar
með svo miklum glæsibrag.
Útgefandi:Ungmennafélagíslands.-Ritstjóri:lngólfurHjörleifsson.-Ábyrgðarmaður:Pálmi
Gíslason.-StjómUMFl:PálmiGíslason,formaður,ÞórirHaraldsson)varaformaður,ÞórirJónssonJ
gjaldkeri,GuðmundurH.Sigurðsson,ritari.Meðstjómendur:DóraGunnarsdóttir,KristjánYngvason,
SigurbjörnGunnarsson. Varastjórn:MagndísAlexandersdóttir,HafsteinnPálssson,Matthías
Lýðsson,SæmundurRunólfsson-AfgreiðslaSkinfaxa:Öldugata 14,Reykjavík,5:91 -12546-Setning
og umbrot: Skri f stof a UMF1. - Prentun: Pren tsm i ð j an Odd i. - Pökkun: V i nnustof an Ás.
Allaraðsendargreinarerbirtastundirnafnieruáábyrgðhöfundasjálfraogtúlkaekkistefnunéskoðanir
b 1 aðs i ns eða st j órnarUMF I.
4
Skinfaxi