Skinfaxi - 01.12.1988, Síða 9
Haukur Gunnarsson á verðlaunapalli eftir 100 m hlaupið. Gullið í höfn.
r
Frábær ferð
Ólafur Eiríksson, aðeins 15
ára en einn af þeim
reynslumestu í ferðinni
„Þegar ég kom út til Seoul þar sem ég sá
heimsmetaskrána í fyrsta sinn, gerði ég
mér grein fyrir að það væri ekki fráleitt að
geta náð einu af ftmm efstu sætunum
einhverjum þeim sundum sem ég tók þátt
í."
Það er Ólafur Eiríksson, einn af
sundfólkinu sem tók þátt í Olympíuleikum
fatlaðra í Seoul, sem segir svofrá. Hann
heldur áfram.
„Fram að þeim tíma hafði ég ekki
hugsað dæmið öðru vísi en að gera mitt
besta. En ég sá að ég átti þessa möguleika
og það hleypti í mig krafti, má segja."
Hafði Ólafur mcett einhverjum áður af
þeim sem hann keppti við?
„Það er ekki hægt að segja það. Þeir
sem maður hafði keppt við á
Norðurlöndunum voru ekki þama. Ég
V_____________________
man eftir einum Þjóðverja sem var ansi
góður. En að öðru leyti var ég að keppa
við nýtt fólk."
Ólafur segir að ekki hafi verið neitt eitt
sérstakt sem var minnisstœtt úrferðinni.
„Ferðin öll var alveg frábær. Þetta var
lfka svo samrýmdur hópur, góður andi.
~\
Við vorum farin að þekkjast nokkuð vel,
flest öll eftir æfíngabúðir og keppnisferðir
þannig að þetta var eiginlega eins og best
varákosið."
Og það er nóg af verkefnum framundan
hjá Ólafi. Malmö Open í febrúar og
Norðurlandamótið í Vestmannaeyjum
næsta sumar.
_______________________J
Skinfaxi
9