Skinfaxi - 01.12.1988, Qupperneq 19
fundinum eins og eftirfarandi ályktanir
bera með sér.
„26. sambandsráðsfundur UMFÍ beinir
því til stjómvalda að stuðla að endur-
vinnslu á einnota umbúðum, svo sem
dósum, femum, pappír og öðru sem til
slíks er fallið.
Jafnframt er því beint til stjómvalda að
herða viðurlög við því að rusl sé skilið
eftir á víðavangi.”
„26. sambandsráðsfundur UMFI beinir
því til stjómar UMFÍ að gangast fyrir
þjóðarátaki um bætta umgengni í
landinu.”
Endurvinnsla og
skilagjald
„26. sambandsráðsfundur UMFI beinir
því til stjómar UMFI að kannaðir verði
möguleikar á söfnun á, t.d. pappír til
endurvinnslu með fjáröflun fyrir einstök
félög í huga.”
„26. sambandsráðsfundur UMFÍ
samþykkir að skora á ríkisstjóm Islands
og tjármálaráðherra að leggja skilagjald á
allar gosdrykkja-, öl- og bjórumbúðir
með sama hætti og nú er Iagt á
glerumbúðir um sömu voru.”
Alit Landsmótsnefndar var að
sjálfsögðu Landsmótsreglugerðin en
útdráttur úr henni er hér í blaðinu. En auk
hennar var eftirfarandi ályktun
samþykkt:
„26. sambandsráðsfundur UMFÍ
leggur á það mikla áherslu að gerviefni
verði lagt á hlaupa- og atrennubrautir
íþróttavallarins að Varmá í Mosfellsbæ
fyrir Landsmót UMFÍ 1990.”
Þetta mál virðist nú komið í höfn eins og
grein um þetta mál hér í blaðinu sýnir.
Björn Þór Ólafsson, formaður UÍÓ,
talaði hart gegn söluskatti á happdrœtti.
Lottómál voru auðvitað mjög til
umræðu. Hér eru tvær tillögur sem þeim
tengjast og Fjárhagsnefnd lagði fram:
„26. sambandsráðsfundur UMFÍ
mótmælir harðlega frámkomnum
hugmyndum um álagningu söluskatts á
happdrætti. Hagnaði af happdrættum
hefur verið varið til að standa undir
margvíslegu menningar- líknar- og
æskulýðsstarfi. Með álagningu
söluskatts á fjáraflanir sem þessar
minnkar þátttaka í þeim, þar með er
rekstrargrundvelli kippt undan félögum
þeim sem hafa haft tekjur af
happdrættum. Álagning söluskatts á
happdrætti getur því haft mjög alvarlegar
afleiðingar fyrir starf þessara félaga sem
allir eru sammála um að séu nauðsynleg
í landinu og best komin í höndum áhuga-
manna og félaga þeirra.”
Það liggur nú fyrir hjá stjómvöldum að
taka ákvörðun um þetta mál og væri það
mjög miður ef þessi hugmynd um
söluskatt næði fram að ganga.
Hægt nú lekur niður
Þing og ráðstefnur UMFÍ eru fræg frá
fomu fari fyrir kveðskap og hann oft
góðan. Svovareinnignú. Tilefniðvarað
einkennisstafir þeir sem settir höfðu
verið upp yfir pontunni í fundarsalnum
vildu á tímabili ekki sitja fastir á sínum
stað. Þeir tóka að hallast og falla niður.
Þá sté Pálmi Gíslason, formaður UMFI í
pontu, kvað á þennan veg og beindi
skeytum sínum að Herði Óskarssyni,
starfsmanni UMFI;
Næturstarfsins nýtur oft.
Nú er lítill friður.
Það sem Hörður hóf á loft
hægt nú lekur niður.
í kjölfar Pálma stökk Ingimundur
Ingimundarson úr Borgarfirðinum í pontu
og skutlaði fram eftirfarandi;
UMFÍ ruggar og riðar,
reynist nú festa ótraust.
Áfram ávallt þó miðar
því erum við glaðleg og hraust.
IH
Samhandsráðs undur! Magnús Stefánsson, framkvœmdastjóri UIA, í rœðustól.
UörðurOskarsson að baki honum og vísast einfaldlega í vísuna hérásíðunni um þetta
efni.
Skinfaxi
19