Skinfaxi - 01.12.1988, Blaðsíða 22
Takið með ykkur skóflur!
Um nokkurn tíma hefur
blakíþróttin átt hug ótrúlega
margra norðfirðinga.
s
Astœðu þess að blakið hefur
orðið svona vinsælt í Nes-
kaupstað má rekja til þess
að auk þess að vera ein-
staklegafélagsleg íþrótt í
eðli sínu hentaði hún vel
hinu litla íþróttahúsi í Ne-
skaupstað.
Þeir Ólafur Sigurðsson og Grímur
Magnússon, kennarar, hafa verið
drifkraftar og mótorar í blakdeild Þróttar
og aldrei talið eftir sér ómak í þágu þess að
blakbolti verði áfram sleginn í Neskaup-
stað.
Sumir telja árangur í íþróttum í
verðlaunagripum og fjölda fyrstu sæta.
Það er auðvitað líka gert í Neskaupsstað
en auk þess nota aðrir annan mælikvarða
og telja hann oft mikilvægari. Þeir eru
allmargir verðlaunagripir sem ungmenni
úr Þrótti hafa unnið í blaki í gegnum árin.
Sum þessara verðlauna hafa unnist eftir
ævintýraleg ferðalög sem oft taka langan
tíma.
Það er ekki óalgengt að sjá
svohljóðandi tilkynnningar á
auglýsingatöflum Verkmenntaskóla
Austurlands:
Blakarar!!
Farið verður kl. 5.00 í
nótt.
Allir taki með sér nesti og
skóflur.
Oft hefur verið not fyrir nesti og skóflur.
Svo var síðastliðinn vetur þegar ein
blakferðin til Reykjavíkur var farin.
Daginn áður en leggja átti af stað voru
veður válynd og útlit fyrir ófærð á
Oddsskarði. Óli og Grímur drifu sig yfir
skarð með rútuna sína (kappamir keyptu
sér einfaldlega rútu undir blakliðin)
þannig að hún væri tiltæk þar daginn eftir.
Um morguninn þegar leggja átti í hann
með snjóbíl yfir skarð bilaði snjóbíllinn
og illa horfði með blakferð.
Þegar landleiðin verður ekki farin
verður að leita að sjóleið. í höfn var
loðnarinn Jón Kjartansson frá Eskifirði að
skila af sér bilaðri nót og var á Ieið heim.
Blakliði Þróttar var stefnt til skips og siglt
af stað til Eskifjarðar
Nú varorðin talsverð seinkun á ferðinni
og góð ráð dýr. Vitað var að talsverður
snjór var á leiðinni milli Reyðarfjarðar og
Fáskrúðsfjarðar og eitthvað þar sunnar.
Kúla, skurður,
brotið höfuðbein
Stuttur stans var gerður á Reyðarfirði
áður en haldið var út í ófærðina. Þá vildi
svo til að þungurtjakkurslöngvaðisttil og
skall í höfuð Óla blakara, sem þarna var
líka í hlutverki bílstjórans. Hann var þar
með sleginn út af laginu í þessari ferð og
sendur heim með kúlu, skurð og brotið
höfuðbein. í skyndi var útvegaður
bílstjóri og lagt af stað. Færðin fór að
þyngjast og handsterkir blakarar fóru út
að moka. Þannig voru mokaðir einir 30
km afþjóðvegi. Sunnar var snjóléttara og
þegar komið var á suðurlandið var liðinn
næstum sólarhringur frá því lagt var af
stað og svefn ríkjandi ástand í
blakrútunni. Ekki segir af árangri en ekki
var hann neitt lakari en endranær, enda
handleggir styrktir af átökum við skóflur
í sköflum á austfjarðavegum.
Ekki hef ég það á hreinu hvort það var í
þessari ferð eða annari þegar farin var
næturferð austur, eftirkeppni í Reykjavík
að allt í einu stóðu fjögur eða fimm hross
fyrirframan rútuna á miðri brú. Það skipti
engum togum að þar lágu fjórir hestar og
brúin leit út eins og sviðsmynd í fjórða
flokks vestra.
Eftir skýrslugerð og stúss vegna hest-
anna var haldið af stað á ný. Færðin
versnaði eftir því sem austar dró. Eftir
Breiðdalsvík var orðið mjög þungfært og
skóflurnar teknar fram. Klukkustundum
saman var skipst á um að moka slóð fyrir
blakrútuna og heim komust allir. Það er
margt hægt að gera með mörgum
skóflum.
Þó svo að mikið sé á sig lagt til að teljast
liðtækur blakari í Þrótti Neskaupstað
verða liðsmenn að bæta á sig
22
Skinfaxi