Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1991, Blaðsíða 6

Skinfaxi - 01.02.1991, Blaðsíða 6
G R E I N Streita og íþróttir eftir Jóhann Inga Gunnarsson og Sæmund Hafsteinsson Sæmundur Hafsteinsson og Jóhann Ingi. Fólk hefur oft velt því fyrir sér hvers vegna íþróttamenn, sem eiga að vera í fullkominni æfingu, ná ekki þeim árangri sem til var ætlast. Hvaðer þaðsemgerir það að verkum að afreksíþróttamenn ná ekki árangri á stórmótum, en frekar á minni mótum? Getur hræðsla við sigur eða ósigur leitt til þess að menn ná síður árangri? Hvernig geta íþróttamenn byggt sig upp svo þeir verði betur í stakk búnir til að berjast við hræðsluna, lömunina sem heltekur þá í keppni? Skinfaxi fékk þá Jóhann Inga Gunnarsson og Sæmund Hafsteinsson til að fjalla um málið. Þeir félagar eru báðir sálfræðingar að mennt. Jóhann Ingi hefur sérhæft sig í sálrænum undirbúningi og starfshvatningu og hefur verið landsliðsþjálfari allra landshópa Islands í handknattleik og þjálfað í vestur-þýsku úrvalsdeildinni. SæmundurstarfarhjáBarnaverndarráði Islands og hefur verið þjálfari í knattspyrnu. Hann hefur sérhæft sig í meðferð við streitu, bæði fyrir einstaklinga og fyrirtæki. „Til að árangur náist þarf hugur að fylgja máli,“ heyrum við stundum sagt. Sennilega munu fáir verða til þess að mótmælaþví. „Vilji er allt sem þarf“, „það skiptir öllu máli að vera ákveðinn“ eða „gerðu þitt besta“ er hvatning af sama meiði. Hugur og líkami verða að fylgjast að. Til að árangur náist í keppni þarf íþrótta- maður að vera til- finningalega undir- búinn, hugurinn þarf að vera reiðubúinn ekki síður en líkaminn. Hvaö er streita? Frá náttúrunnar hendi er maðurinn þannig gerður að heilinn stjórnar, samræmir og fylgist með líkamanum og ástandi hans. Þetta á ekki aðeins við um alla ómeðvitaða starfsemi innri líffæra, heldur einnig viðbrögð okkar gagnvart umhverfinu eða ytra álagi. Ef við verðum t.d. fyrir skyndilegri árás óargadýrs byrjar heilinn samstundis að undirbúa líkamann undir átök. Vöðvarnir spennast upp, sjáöldur augnanna víkka, blóðflæði til vöðva eykst, hjartað slær örar, öndun verður hraðari, sviti sprettur fram, adrenalín og fleiri hormón losna út í blóðrásina, meltingarfæri draga úr starfsemi sinni o.m.fl. Við verðumáaugabragði tilbúin til átaka, nú er að duga eða drepast, spennustig líkamans er hátt og eðlilegt miðað við aðstæður: nú þarf að takast á við óargadýr! En hvað hefði gerst ef heilinn hefði „misreiknað sig“ og við ekki orðið nægilega spennt? Sennilega hefðum við orðið óargadýrinu að bráð. Við hefðum ekki gert okkar besta þegar til átaka kom, hefðum ekki nýtt þann styrk og þá snerpu sem við annars búum yfir, áhugaleysi hefði e.t.v. gert vart við sig, við hefðum vanmetið andstæðinginn og sofnað á verðinum. En ef heilinn hefði ofmetið óargadýrið og spennt líkamann meira en góðu hófi gegndi? Þá hefðum við trúlega fundið til máttleysis eða stirðleika, átt erfitt með að hafa yfirsýn yfir aðstæður, fundið til flökurleika, fengið í magann, orðið pirruð eðafundið til kvíða. í slíku ástandi erum við óargadýrum auðveld bráð. Sú spenna eða þau viðbrögð sem hér hefur verið lýst, voru áður fyrr þekkt undir nafninu „baráttu-flótta- viðbrögðin“, en nú á dögum er oftast talað um streituviðbrögð. Streitu má skilgreina sem „hin eðlilegu viðbrögð líkamans við utanaðkomandi hættu eða álagi“. Þessi viðbrögð miða að því að búa líkamann undir átök. Streita er því bæði eðlileg og nauðsynleg þegar við tökumst á við erfið verkefni, hvort sem það er úti í náttúrunni eða á íþrótta- vellinum. Eins og í dæminu hér að framan má spennustig líkamans hvorki vera of hátt né of lágt eigi hámarks- árangur að nást. Þetta á við þegar við lendum óviljandi í hættu eða mótbyr. Og þetta á lfka við þegar við viljum nýta getu okkar til fulls í íþróttum. Að stjórna spennu íþróttamenn þekkja vel tilfinninguna sem fylgir of mikilli spennu. Spennan getur líka orðið of lítil, t.d. þegar andstæðingurinn er vanmetinn í leik. Það má því segja að árangur í íþróttum sé meðal annars kominn undireinhvers konar „spennustillingu" eða spennu- stjórnun. Hér vakna spurningar eins og hvort mögulegt sé að hafa áhrif á streitu íþróttamanna. Er til einhver aðferð til að þekkja spennu? Er unnt að stjórna spennu? Þessum spurningum svörum við hiklaust játandi. Það er margt hægt að gera til að undirbúa íþróttamenn undir erfiða keppni. Góð og markviss þjálfun 6 Skinfaxi

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.