Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.02.1991, Page 14

Skinfaxi - 01.02.1991, Page 14
SUNDÞJALFUN Létt sundþjálfun fyrir alla eftir Hörö S. Óskarsson íþróttakennara Þiö standiö mér ekki á sporði! Hugsar þií um líkama þinn? Reglubundin sundiðkun er mikilvægari en vegalengdin sem þú syndir Hvað getum við gert til að auka þrótt og styrk líkamans? Hvernig getum við gert okkur hæfari til að verjast veikindum, umgangs- pestum og utanaðkomandi áföllum? Það er margt hægt að gera, t.d. að hjóla, skokka, ganga, hlaupa, fara á skíði og skauta, stunda leikfimi o.fl. Möguleikarnir eru fjöl- margir. En hversu margir notfæra sér þá? Alltof fáir. Taktu þér nú tak og vertu með í heilsu- bótarherferðinni, það marg- borgar sig, hvernig sem á það er Iitið. Líkamsrækt er svo sannar- lega fyrirbyggjandi heilsuvernd í orðsins fyllstu merkingu. Sundíþróttin er sú heilsu- bótaríþrótt sem hentar öllum vel, á hvaða aldri sem þeir eru. Fullfrískir, lamaðir og þeir sem eru að ná sér eftir veikindi geta auðveldlega notað sundið sem heilsugjafa. Sundið er ekki síst gott fyrir kyrrsetufólk sem situr tímunum saman án þess að hreyfa legg né lið. I vatninu verður líkaminn léttur og auðvelt er að hreyfa hann. Sundíþróttin er: Góð fyrir bakveika. Góð fyrir þá sem þjást af offitu. Góð fyrir barnshafandi konur. Góð heilsubót fyrir veikburða og þá sem þurfa endurhæfingar við. Góð fyrir kappsfulla unglinga sem vilja þreyta keppni í sundi. Góð afslöppun og gleðigjafi fyrir þá sem kjósaatþreyingu frádaglegu amstri. Ódýr kostur Ef þú hefur lengi látið skeika að sköpuðu um líkama þinn farðu þá eftir þessum sundæfingum til að auka hreysti þína, líkamlegt atgervfi og lífslíkur. Láttu verðaafþvíaðgangareglulegatil laugar og hefja léttar æfingar. Þetta er ódýr kostur og eykur þér vellíðan, getur 14 Skinfaxi

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.