Skinfaxi - 01.02.1991, Blaðsíða 25
V I Ð T A L
„Ég stefni á að fara á Norðurlanda-
meistaramótið sem haldið verður í
Noregi í maí. Ég hef ekki enn náð
lágmörkum, en ég ætla að ná þeirn á
íslandsmóti fatlaðra sem verður í lok
mars.”
Erþaðtónlistin sem eraðaláhugamálið
fyrir utan sundið?
„Já það má segja það, ég er búinn að
spila á píanó í 3 ár og hef áhuga á allri
tónlist.”
Hver er uppáhalds hljómsveitin þín?
„Það er dönsk/bandarísk hljómsveit sent
heitir Metallica og spilar þungarokk.”
Skinfaxi þakkar Birki kærlega fyrir
skemmtilegt spjal 1 og óskar honum góðs
gengis og skorar á hann að halda áfram
á sömu braut og ná lágmörkum á
Norðurlandameistaramótið í Noregi.
Áskorun
Það er ánægjulegt þegar þátttaka og
áhugi á íþróttum fatlaða eykst því það
er fötluðum einstaklingum svo
sannarlega ntikils virði. Sundið er sú
íþrótt sem án efa hentar fötluðum
íþróttamönnummjög vel. Sundiðreynir
á llestalla vöðva og auðveldar þeim
hreyfingar sem eiga erfitt með þær á
þurrulandi. Hjáíþróttafélögumfatlaðra
út um allt landertekiðámóti öllum sem
hafa áhuga á að vera með, hvort sem
þeir eru byrjendur eða lengra komnir.
Hér með er skorað á alla fatlaðra að
setja sig í samband við íþróttasamband
fatlaða og fá upplýsingar um þau félög
sem eru í nágrenninu. Þið eigið ekki
eftir að sjá eftir að kynnast öllunt
krökkunum og fólkinu sem eru kappsfull
að æfa sig og öllum líður miklu betur
þegar líkaminn er ígóðu formi. Síminn
hjá Önnu Línu, sem er
framkvæmdastjóri Iþróttasambands
fatlaðra er 91-83377
Þátttaka í íþróttum
er góö leið til sjálfshjálpar
Það fólk sem fylgst hefur best með
málefnum fatlaðra eða lagt þeim
lið á einhvern hátt hefur oft á
tíðum komið úr röðuin fatlaðra
sjálfra eða þá átt ættingja sem er
fatlaður. Margir eru hræddir við
að umgangast fatlað fólk af því
þeir þekkja það ekki og halda að
þeir viti ekki hvernig á að koma
fram við það. Sumir halda að
fatlaðir einstaklingar séu mjög
frábrugðnir okkur hinum í raun.
En er það tilfellið, erum við ekki
öll meira eða minna fötluð og þá
um leið lík fötluðum einstak-
lingum ef vissar aðstæður eru fyrir
hendi. Viðgetumtekiðsemdæmi
mann sem tekur niður gleraugun
sín og getur ekki framkvæmt alla
þá hluti sem hann er vanur að
þegar gleraugun eru á nefinu á
honum. Þessi maður er ekki svo
frábrugðinn fötluðum einstaklingi
þegar hann horfir á götuskiltin og
reynir að komast leiðar sinnar.
Anna Lína Vilhjálmsdóttir er fram-
kvæmdastjóri hjá Iþróttasambandi
fatlaðra. Hún er íþróttakennari frá ÍKÍ
og almennur kennari frá KHÍ, en hefur
auk þess stundað nám við Háskólann og
íþróttaháskólann í Kaupmannahöfn.
Lokaverkefni hennar í Danmörku var
um hlutverk íþrótta í endurhæfingu og
tengsl heilbrigðiskerfisins og
samfélagsins hér á landi með tilliti til
þessa.
Hefur íþróttaþátttaka fatlaðra
einstaklinga ekki mjög mikið að segja,
hvað endurhæfingu og almenna líðan
varðar? Sinnir heilbrigðisþjónustan
hlutverki sínu fyrir fatlaða? Skinfaxi
Skinfaxi
25