Skinfaxi - 01.02.1991, Blaðsíða 13
ÍÞRÓTTAMANNVIRKI
Eftir er að byggja 614 fm
búningsklefahús, þá verður byggt yfir
gömlu lauginaog þá aðstöðu sem henni
fylgir, hús sem verður að grunnfleti 820
fm. Þá verður innréttuð aðstaða fyrir
heilsuræktarstöð og gufubað í kjallara
nýju sundlaugarinnar. Sérstök
barnalaug er enn ógerð, en það verður
að teljast ókostur að gert er ráð fyrir
henni til hliðarviðhinanýju laug lengsl
frá sjálfu sundlaugarhúsinu. Slík
staðsetninghlýturað gerastarfsmönnum
erfitt fyrir með eftirlit, þó svo að 6
tölvumyndavélar séu til þess gerðar að
eftirlit verði betur tryggt.
Aætlaður kostnaður við sundlaugar-
mannvirkið, sem nú het'ur verið tekið í
notkun er nálægt 260 milljónum króna,
en áætlað er að um 200 milljónir króna
fari í þær framkvæmdir sem eftir eru.
Forstöðumaður sundlaugar
Kópavogs er Strandamaðurinn
Ingimundur Ingimundarson.
Hann er gamalkunnur ung-
mennafélagi, hefur þjálfað sund
og frjálsar íþróttir hjá inörgum
samböndum og einnig verið
framkvæmdastjóri. Síðustu ár
hefur Ingimundur verið fram-
kvæmdastjóri Ungmennasam-
bands Borgarfjarðar.
Ingimundursagði ísamtali viðSkinfaxa
að sér likaði nýja starfið vel, það væri
Ingimundur tekur viö mynd af sundlauginni úr hendi Kristins Kristinssonar
formanns byggingarnefndar.
krefjandi, en skemmtilegt.
„Ég held að reynsla mín af
margháttuðum störfum hjá héraðs-
samböndunum komi mér að góðum
notum, t.d. í sambandi við stjórnunar-
störf og ég hef fengið mikla reynslu úr
Félagsmálaskóla UMFÍ.
Hvenar hefjast áframhaldandi
framkvœmdir við sundlaugina oghvað
er það sem gert verður?
„I sumar verður stefnt að því að taka í
notkun vatnsrennibraut fyrir krakka og
einnig hefur verið talað um að setja upp
aðstöðu fyrir ljósabekki. En það er
mjög aðkallandi að byggja búnings-
klefann sem á að koma á milli
sundlaugannaogeinnig heita potta. Við
vonumst til að framkvæmdir hefjist ekki
síðar en 1992. En allt kostar þetta
peninga og hver áfangi hleypur á tugum
milljóna.”
Hvernig hefur svo aðsóknin verið,
hverjir eru háannatímarnir?
„Morgunhanarnir koma milli 7 og 8 á
morgnana, en mesti annatíminn er
síðdegis, þegar börnin eru komin úr
skólanum og fólk er búið að vinna.
Annars hefur aðsóknin verið nokkuð
sveiflukennd, opnunarvikuna gerði
margumtalað óveður og við þurftum að
lokaumtíma. Égheldað sunnudagurinn
17. febrúar sé sá besti hingað til, en þá
komu rúmlega 700 manns í sund.”
Kennuslusund íKópavogi hefur verið
í molum síðan um síðustu áramót,
hvað vilt þú segja um það mál?
„Já, það er alveg rétt og ástæðan er sú að
skólasundið var ekki skipulegt fyrir allt
skól aárið og þegar t i 1 átti að taka rey ndi st
mjög erfitt að fá kennara. En það mál er
nú komið í réttan farveg. Skólastjórar
og íþróttakennarar hafa lagt sig alla
fram við að leysa þetta mál. Sund-
kennslan verðurþóekkikominíeðlilegt
horf fyrr en á næsta skólaári.
Ég vona að tilkoma þessarar nýju laugar
í Kópavogi verði til þess að efla alla
sundiðkun í bænum og ég hef fullan
hug á að leggja mitt af mörkum til þess
að sunddeild UBK eflist.”
Skinfaxi
13