Skinfaxi - 01.02.1991, Síða 17
LANDSMÓT
Landsmót fjölskyldunnar á
Laugarvatni 1993
Nú hafa HSK-menn
forinlega ákveðið að 21.
Landsmót UMFÍ verði
haldið á Laugarvatni
árið 1993. Samþykkt
þess efnis var gerð á 69.
sambandsþingi HSK,
sein haldið var 23.-24.
febrúar á Skógum.
HSK-menn eru ekki
óreyndir í landsmóts-
haldi, en þeir hafa alls
haldið51andsmót. Pau
voru haldin í Haukadal
1940, í Hveragerði
1949, á Þingvöllum
1957, á Laugarvatni
1965 ogáSelfossi 1978.
Laugarvatn er mjög
ákjósanlegur staður fyrir
landsmótshald. Fyrir utan
þá náttúrufegurð sem staðurinn hefur
upp á að bjóða er aðstaða fyrir
margskonar íþróttir ntjög góð. Nýtt,
fyrsta flokks íþróttahús er á staðnum,
búið öllum helstu tækjum. Þá hefur
önnur íþróttauppbygging verið
markviss.malarvöllurendurbætturo.fl
Aðstöðumál hafa þó verið í nokkurri
óvissu þarsem tjárlög ríkisins fyrirárið
1991 gáfu ekki tilefni til þess að hægt
yrði að halda landsmót á Laugarvatni
1993.
Ríkið, sem er eigandi að öllum skólum
og allri aðstöðu áLaugarvatni, hefur nú
gefið vilyrði fyrir um 30 milljónum
króna lil byggingar útisundlaugar.
Sundlaugin verður 25 metra löng, gerð
úr stáli og gert er ráð fyrir því að hægt
verði að byggja yfir hana síðar.
Framkvæmdir við sundlaugina munu
að öllum líkindum hefjast með vorinu.
Aðalleikvangurinn á Laugarvatni er í
slæmu ásigkomulagi og talið er
nauðsynlegt að verja um 15 milljónum
króna til lagfæringar á honum. Um er
að ræða end urnýj un gerviefnis á 5 hringi,
en 6 hlaupabrautir meðfram langhlið.
Engarfjárveitingarfrá rfkinu liggjafyrir
til uppbyggingaraðalleikvangs áþessu
ári. Þá er talið brýnt að verja 11
milljónum króna til ýmissa endurbóta,
viðhalds og tækjakaupa á þessu ári.
Brýnt að hefja strax
markvissan undirbúning
Formaður Landsmótsnefndar HSK er
Guðmundur Kr. Jónsson, gamalkunnur
frjálsíþróttamaður og forystumaður
innan HSK. Hann leggur áherslu á að
haldið verði heildstætt mót þar sem
keppendur og gestir hafi það á tilfinn-
ingunni að þeir séu þátttakendur í einu
móti, burtséð frá því um hvaða greinar
er að ræða. Þessvegna verði lögð
megináhersla á að keppnisgreinafjöldi
og umsvif mótsins miðist við þær
aðstæður sem fyrir hendi verða á
Laugarvatni, þannig að hver grein fái
notið sín.
Mikið hefur verið rætt um að stytta
mótið frá því sem var í Mosfellsbæ og
byrja mótið á fimmtudegi í stað
miðvikudags eins og gert var á
Landsmótinu á Húsavík 1987.
Keppenda- og tjölskyldubúðir verða á
túnunum við lilið aðalleikvangsins og
mun það án efa verða til mikilla þæginda
fyrirkeppendursemfjölskyldufólk,því
stundum hafa rnenn kvartað yfir því
fjarlægðinni frá tjaldbúðum á
mótssvæðið.
HSK menn standa nú í samninga-
viðræðum við IMI, sem kemur fram
fyrir liönd ríkisins og skólanna á
staðnum. Um er að ræða samning um
áframhaldandi uppbyggingu og afnot
af íþróttamannvirkjum og allri aðstöðu
á Laugarvatni. Vonast er til að
samningar verði bundnir fastmælum
um miðjan maí í vor.
Guðmundur sagði að sér litist illa á
málin ef samningar tækjust ekki og þá
yrði Landsmótsnefnd að endurmeta alla
stöðuna. Og þó svo að enn hefði engu
fjármagni verið varið til aðalleik-
vangsins yrðu menn auðvitað rólegri ef
samningar tækjust, því þá væri kornið
loforð fyrir því að allt yrði tilbúið á
Landsmóti 1993. Guðmundur sagði
það mjög brýnt að fá úrþessu skorið því
HSK-menn ætluðu strax að hefja
markvissan undirbúning fyrir mótið.
Skinfaxi
17