Skinfaxi - 01.02.1991, Blaðsíða 24
I Þ R 0 TTIR
Fjölmenni á nýjárssundi fatlaðra
Verðlaunahafar talið f.v. Snorri S. Karlsson, SH, Birkir R. Gunnarsson, ÍFR og Katrín Sigurðardóttir, Suöra.
Árlegt nýjárssund fatlaðra barna
og unglinga fór fram í Sundhöll
Reykjavíkur 6. janúar s.l. og var
það haldið í áttunda sinn. Á
mótinu kepptu fötluð börn fædd
árið 1974 og síðar. Keppt var í
flokki hreyfihamlaðra, þroska-
heftra, blindra, sjónskertra og
heyrnarlausra. Fyrirkomulag
mótsins var þannig að hverjum
keppanda voru gefin stig eftir
alþjóðlegri stigatöflu og fengu þrír
stigahæstu keppendur mótsins
verðlaun. Allir áttu því jafna
möguleika til sigurs.
Mótið fór vel fram og var sérstaklega
hátíðlegt. í tengslum við mótið voru
ýmis skemmtiatriði. Gunnar Guð-
mundsson, sem er einhentur og blindur
spilaði jóla- og þrettándalög á
harmoniku og Alda Lilja Sveinsdóttir
sýndi áhorfendum skrautsund.
Það var Birkir Rúnar Gunnarsson,
íþróttafélagi fatlaðra í Reykjavík sem
varð stigahæstur og hlaut 509 stig fyrir
50 m bringusund, sem hann synti á
46,01 sek og setti þar með glæsilegt
íslandsmet í sínum flokki, B1, en það er
það flokkur blindra. Hann setti einnig
Islandsmet í 50 m baksundi sem hann
synti á 47,12 sek. Birkir Rúnar vann
besta afrek Nýjársmótsins og af því
tilefni veitti hann Sjómannabikarnum
viðtöku,en sábikarergefinnaf Sigmari
Ólasyni sjómanni frá Reyðarfirði.
„Ætla að ná lágmarki á Norðurlanda-
meistaramótið”
Birkir Rúnar er 13 ára. Hann byrjaði að
æfa sund sex ára gamall hjá Jóni Hauki
Ólafssyni í blindradeildinni, en æfir nú
með Iþróttafélagi fatlaðra í Reykjavík
undir stjórn Kristínar Guðmundsdóttur
þjálfara og er í ört vaxandi framför.
Skinfaxi hitti Birki að máli og lagði
fyrir hann nokkrar spurningar.
Pú hefur verið að œfa út um allan bœ,
finnstþér aðstaðan sem þú hefurnógu
góð?
„Aðstaðan er langt frá því að vera nógu
góð. Ég æfi mest í Hátúninu og svo í
Sundhöllinni. Laugin íHátúninu er allt
of stutt bara 16 m og vatnið er 32 stig,
en það ætti að vera27-28 stig. Við erum
búin að sækja um æfingaaðstöðu í nýju
50 m sundlauginni í Kópavoginum.”
Hvað œfir þú lengi og oft í viku?
„Ég æfi núna þrisvar í viku, en ef við
fáum aðstöðu til að æfa í
Kópavogslauginni þá æfum við sex
sinnum í viku. Ég syndi 3,2-4 km á
hverri æfingu sem tekur 2-3
klukkustundir, en þar af erum við oft í
þreki í eina klukkustund.”
Hvert er aðalmarkmið þitt núna?
24
Skinfaxi