Skinfaxi - 01.02.1991, Page 37
ÍÞRÓTTAMANNVIRKI
Nýtt íþróttahús hannað með það að
markmiði að vera sem ódýrast í
byggingu og rekstri
.
Sparnaður er nokkuð sem við
reynum að tenija okkur, en |>að
gengur misjafniega vel. Með
hugsun og yfirvegun má spara á
margan hátt og jafnvel þegar
íþróttahús eru byggð má spara
fermetrana, lækka hitunar-
kostnað, rafinagnskostnað og
draga úr starfsmannahaldi.
Snemma í janúarmánuði var vígt nýtt
og glæsilegt íþróttahús í Þorlákshöfn að
viðstöddu miklu fjölmenni, en alls munu
um 800 manns hafa verið við vígsluna.
IþróttaunnenduríÞorlákshöfn hafa lengi
mátt búa við þröngan kost og er það
sérstakt gleðiefni fyrir þá þegar nýtt
íþróttahús er nú tekið í notkun eftir að
hafa verið einungis tvö ár í byggingu.
Iþróttahúsið stendur við hlið
sundlaugarinnar og er 1570 fermetrar
að grunnfleti, en gólfflatarmál þess með
efri hæð er 1815 fermetrar.
Þessi eru strax farin að æfa á nýja gólfinu
Iþróttasalurinn, sem er löglegur
keppnisvöllur allra innigreina, er 1150
fermetrar og á áhorfendabekkjum er
áætlað að 700-800 áhorfendur komist
fyrir í sæti.
Húsið mun hafa kostað um 105-110
milljónir króna, en uppreiknað er það
metið á 122 milljónir króna.
Samsvarandi hús í Reykjavík myndi
kosta um 160 milljónir króna. Hluti
þessarar upphæðar, eða um 10 milljónir
króna, fóru þó til endurbóta á sundlaug,
þar sem m.a. voru keyptir heitir pottar.
VT teiknistofan á Akranesi hannaði
húsið, sem svipar nijög lil íþróttahúss
þeirra Skagamanna. Húsin eru bæði
hönnuð með það að markmiði að vera
hagkvæm í byggingu og ódýr í rekstri.
Árlegur
hitunarkostnaður
jafnast á við tvö
einbýlishús
Jón Runólfsson, einn af aðstandendum
VT teiknistofunnar sagði í samtali við
Skinfaxaaðþessi byggingaraðferð væri
ódýr, en samt traust og góð og sérstakir
öryggisþættir væru í frágangi hennar.
Hann sagði að kerfið væri byggt þannig
upp að i n nst væru 1 ímtrésbitar, ofan á þá
væri sett stálklæðning, þar ofan á plast
sem væri læst sérstaklega saman. þannig
að ef raki kæmist í gegn þá rynni hann
út af plastinu. Þá kæmi 20 cm þykk
steinul lareinangrun, síðan vindpappi og
Skinfaxi
37