Skinfaxi - 01.02.1997, Qupperneq 23
SJQVAnilTTALMENNAR
Akstur og áfengi fara aldrei saman!
Eru ungir ökumenn eins slæmir og oft er látiO í veðri vaka? Vaida
þeir ekki tleiri tjónum en aOrir? Og eru tjónin hjá þeim ekki
stærri og meiri aO meOaltali en hjá öOrum?
Vissulega valda þeir fleiri og stærri tjónum en aðrir aldurshópar,
en að þeir séu verri en aðrir er ekki sjálfgefið. Á sumum sviðum
eru þeir betri en þeir eldri. Þeir hafa með meiri snerpu en eldri
ökumenn, þeir þekkja umferðarlögin betur og að meðaltali er
sjónin betri. Þeir eiga betra með að skilja flóknar reglur og
mannvirki sem stöðugt fer fjölgandi.
En fyrst þeir eru svo góðir, hvað veldur tjónatíðninni? Þar má að
mestu kenna um reynsluleysi. Unglingur sem hefur stundað
knattspyrnu í mörg ár kemst etv. ekki í meistaraflokk fyrr en eftir
8-10 ár. Hann má heldur ekki gera mörg mistök til að fá pokann.
Þegar þessi sami unglingur fer út í umferðina fær hann kannske
8 - 20 tíma í ökukennslu ásamt bóklegu námi og æfingarakstri.
Honum er ætlað að etja kappi við þrautreynda ökumenn og
standa jafnfætis þeim.
Reynsluleysið gerir það af verkum að ungi ökumaðurinn þekkir
ekki takmörk sín eða bílsins og hættir honum til að fara yfir
mörkin með oft slæmum afleiðingum. Hann notar bílinn sem
leiktæki án þess að gera sér grein fyrir hugsanlegum afleiðingum,
því reynsluna skortir hjá honum.
Ýmsar afleiðingar reynsluleysis má sjá í því að ungir ökumenn
aka oftar undir áhrifum áfengis, þeir hafa heyrt að akstur og
áfengi megi ekki fara saman, en þeir vita etv. ekki hvers vegna.
Afleiðingin er að þeir aka undir áhrifum áfengis og valda stórslysi.
í könnun sem Sjóvá-Almennar lét gera meðal 500 ungmenna
viðurkenndu 51% að hafa ekið undir áhrifum áfengis. Þegar þau
voru spurð nánar hvers vegna, þá vissu þau ekki raunverulegar
afleiðingar áfengis á hæfni þeirra til að aka.
Þeir hafa heyrt að þeir eigi að nota 3 sekúndna regluna til að
meta bil í næsta bíl fyrir framan, en þeir vita ekki hvers vegna.
Afleiðingin er að 27% tjóna þeirra eru aftanákeyrslur sem oft
slasa fólk.
Sjóvá-Almennar gera sér grein fyrir þessu vandamáli og hafa því
boðið ungum ökumönnum 17-20 ára að koma á 2ja kvölda
námskeið um umferðarmál, þar sem tekið er fyrir hvaða þættir
það eru sem valdið geta vandræðum og hvað megi gera til að
forðast að lenda í slíkum aðstæðum í umferðinni. Þessi
námskeið hafa verið haldin frá 1995 og fylgst hefur verið grannt
með þátttakendum a.m.k. ári eftir námskeið og komið hefur í Ijós
að tjónatíðni þeirra sem námskeiðið sækja er þrefalt lægri en
þeirra sem ekki koma á námskeið.
Það er Ijóst að unga fólkið er ekki ánægt með þessa háu
tjónatíðni og þegar það fær að takast á við vandamálið þá skilar
það sér í bættri umferðarhegðun og lægri tjónatíðni. Það hlýtur
að vera kappsmál allra sem að þessum málum koma að slíkt
gerist, því það er þjóðhagslega hagkvæmt að þessi ungi hópur
sem þjóðin mun treysta á í framtíðinni komist slysalaust í gegn
um reynslutímabilið í umferðinni.
Sjóvá-Almennar, Einar Guðmundsson fræöslustjóri
23