Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.10.1997, Qupperneq 28

Skinfaxi - 01.10.1997, Qupperneq 28
Ungmennavika 1997 Ungmennavika ungmennahreyfinga á Norðurlöndunum (Nordisk samorganisation for ungdomsarbejde, NSU) var að þessu sinni haldin í Cristianslyst í Suður-Slésvík, dagana 27. júní til 4. júlí. Suður-Slésvík er í raun í Þýskalandi, svæði sem er alveg upp við dönsku landamærin. Til ársins 1920 var þetta landsvæði hluti af dansa hertogadæminu Slésvík-Holstein og því undir danskri stjórn þangað til danska stjórnin tók þá ákvörðun að leyfa íbúum svæðisins að kjósa um það hvort þeir vildu tilheyra Danörku eða Þýskalandi. Meirihluti íbúanna kaus að tilheyra Þýskalandi og dönsku landamærin færðust nokkuð sunnar en þau höfðu verið fram að því. Þeir íbúanna sem vildu tilheyra Danmörku héldu áfram að tala dönsku og þeirra afkomendur hafa gert það líka, þó svo að fáir séu sem ekki tala þýsku líka. Þetta landamæraflakk er sem sagt ástæðan fyrir því að í dag býr dönskumælandi minnihluti í Suður-Slésvék í Þýskalandi, sem tekur þátt í norrænu samstarfi. Markmið ungmennavikunnar er að gefa krökkum á aldrinum 14 - 25 ára, tækifæri til að kynnast jafnöldrum sínum á Norðurlöndunum. Þessu markmiði er náð með því að vinna saman í hinum ýmsu hópum og fara saman í skoðunarferðir um nágrennið. Það var kátur hópur sex íslendinga sem hélt af stað föstudagsmorguninn 27. júlí á vit ævintýranna. Það var flogið til Hamborgar og þar var tekið á móti hópnum og haldið áleiðis til Cristianslyst. Veðurguðirnir létu heldur ófrýnilega þegar við komum, rigndi heil ósköp og gekk á með þrumum og eldingum, en það sem eftir var vikunnar sýndu þeir á sér betri hliðarnar og var gott veður flesta dagana. Fyrsta kvöldið fór í að kynnast hinum þátttakendunum sem komu frá öllum hinum Norðurlöndunum nema Færeyjum. Að þessu sinni var boðið upp á bolta- og leikjahóp, kajakhóp, róðrarhóp, handavinnuhóp, þrykkihóp og dagblaðshóp. Allir þátttakendur prófuðu eitthvað tvennt, nema þau sem voru í blaðahópnum en þau sáu um að gefa út blað þar sem greint var frá því sem markvert þótti þennan tíma. Margt spaugilegt var í blaðinu og voru þátttakendur misjafnlega ánægðir með efnistök. Til dæmis komust íslensku drengirnir á blað fyrir það að þeir lentu í brasi með sturtuna hjá sér, þeir sögðu að ekkert kalt vatn væri í sturtunni. Píparinn mætti á svæðið og sagði að það þyrfti bara að skrúfa frá kalda vatninu og þá væri þetta allt í himnalagi ! íslensku drengirnir voru nú ekki alveg sáttir við þetta og sóru og sárt við lögðu að það hefði ekki verið hægt að skrúfa frá þegar þeir reyndu. En fyrir þetta atvik fengu þeir kennsluþátt í „Vikudagblaðinu" um það hvernig skrúfa skal frá kalda

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.