Skinfaxi - 01.02.1998, Blaðsíða 14
Nissan-deildin í handknattleik hefur
sjaldan veríö jafnarí og skemmti-
legrí en einmitt í vetur og það hefur
verið nánast ómögulegt að spá fyrir
um leiki. Fyrir tímabilið voru ilmf.
Afturelding og KA talin sigur-
stranglegust en engan vegin hafa
þessi lið náð að stinga hin af.
Framarar hafa komið sterkir inn og
Eyjamenn og HK hafa reynst
sterkari en við var að búast.
Úrslitakeppnin fer nú að hefjast og
þar á ekkert lið öruggt sæti í næstu
umferð en Framarar og Afturelding
verða óneitanlega að teljast sigur-
stranglegust.
Siguröur Bragason og félagar hjá ÍBV hafa veriö óstöövandi
f undanförnum leikjum og eru til alls líklegir í úrslita-
keppninni.
Afturelding
„Kjúklingarnir" úr Mosfellsbænum eru
óneitanlega meö besta liðið á pappírunum
en það hefur gengið illa að sameina
strengina og liðið hefur tapað óvænt eins
og fyrir ÍBV í bikarnum og Víkingum í
deildinni. Það er hins vegar trú Skinfaxa
að þegar leikirnir verða mikilvægari fari
vélin í gang. Páll Þórólfsson, Jason
Ólafsson, Gunnar Andrésson, Siggi
Sveins og Einar Gunnar Sigurðsson eru
allir frábærir handknattleiksmenn og
Bergsveinn Bergsveinsson getur lokað
markinu á góðum degi. Afturelding fer alla
leið að þessu sinni.
Fram
Þetta unga og efnilega lið hefur sýnt það
og sannað í vetur aö það getur unnið
hvaða andstæðinga sem er.
Línumaðurinn Oleg Titov leikur lykil-
hlutverk hjá liðinu. Hann er eins og klettur
í vörninni og illviðráðanlegur í sókninni.
Aðalgalli Framliðsins er hversu smávaxnir
sóknarmenn liðsins eru en skytturnar
Magnús Arnar og Daði hafa samt oft gert
andstæðingunum lífið leitt. Það verður
gaman að fylgjast með Safamýra-
strákunum í úrslitakeppninni og það er
spá Skinfaxa að það spili úrslitaleikina
gegn Aftureldingu.
Haukar
Liðið hefur ekki verið sannfærandi að
undanförnu en leikreynslan mun halda
þeim lifandi í úrslitkeppninni. Haukar tefla
fram sterku liði en einhvern veginn hefur
vantað allan stöðugleika hjá liðinu. Aron,
Gústi og félagar eiga miklu meira inni en
þeir munu ekki komast í úrslit þetta árið.
KA
Það hefur vantað allann „Duranona" neista
í KA liðið í vetur. Liðið tók þátt í erfiðri
Evrópukeppni og eflaust hefur það haft
áhrif á leik liðsins í deildinni. Akureyrar-
strákarnir ættu hins vegar að mæta öflugir
í úrslitakeppnina og hver veit nema liðið
fari þá á flug en ólíklegt verður að teljast
að þeir verji titil sinn þetta áriö. Skinfaxi
spáir þeim í undanúrslit.
IBV
Eyjamenn hafa verið mjög sannfærandi
eftir áramót og þegar þetta er skrifað hefur
liðið unnið fimm leiki í röð. Varnarleikur
liðsins hefur verið frábær og „gamli
karlinn" Sigmar Þröstur Óskarsson hefur
farið á kostum á milli stanganna. Peyjarnir
eru hins vegar ungir og óreyndir og hafa
átt erfitt með að bregðast við því þegar
stórskytta þeirra Robert Pauzoulis hefur
verið tekin úr umferð. Skinfaxi spáir þeim
í undanúrslit.
Valur
Það hefur e.kki verið neinn stórmeistara-
bragur á Valsmönnum í vetur. Liðið hefur
„unnið" einn titil það sem af er en mjög
ósennilegt verður að teljast að liðið hampi
öðrum. Jón Kristjánsson verður að vera (
feiknarformi ef Hlíðarendastrákarnir ætla
sér árangur í úrslitakeppninni og
áhangendur liðsins bíða enn eftir því að
Guðmundur Hrafnkelsson hrökkvi í gang.
Valsstrákarnir fá líklega KA í fyrstu umferð
og það gæti verið of stór biti fyrir þá.
14