Skinfaxi - 01.02.1998, Blaðsíða 17
eitthvað skemmtilegt að gerast hjá UMFl."
■ Heldur þú að það hafi hjálpað
þér að hafa unnið svona mikið innan
hreyfingarinnar áður en þú tókst við
starfi framkvæmdastjóra?
„Það getur vel verið að ég sé aðeins
fastheldnari á það sem er að gerast í
ungmennafélagshreyfingunni. Það gæti
verið að ég hefði reynt að hafa áhrif á meiri
breytingar hefði ég komið
nýr inn. En ég hef oft sagt
það, að breytingar innan
hreyfingarinnar gerast að
mörgu leiti af sjálfu sér og
hreyfingin þróast með
þjóðfélaginu og fylgir
kröfum tímanns hverju sinni.
Sumum, sem þekkja
ungmennafélagshreyfing-
una lítið, finnst hún kannski
vera gamaldags og hall-
ærisleg en þegar þeir sömu
átta sig á, fyrir hvað
hreyfingin stendur, þá
kemur það því fólki enn
meira á óvart hvað
ungmennafélagshreyfingin
er öflug."
- Finnst þér hafa
orðiö miklar breytingar
á starfinu þann tíma
sem þú hefur starfað
hjá hreyfingunni?
„Það er alltaf einhver
þróun í gangi og þær
breytingar sem eru í gangi í dag eru
sameiningarmálin og stækkanir á félögum
og sambandsaðilum. Aðrar breytingar sem
ég held að eigi eftir að verða, er aukið vægi
umhverfis- og menningarmála í framtíðinni
en þessi málefni eru mikið í umræðunni hjá
félagasamtökum um allan heim í dag."
■ Stærsti þáttur ungmennafélags-
hreyfingarinnar eru íþróttir. Er erfitt
fyrir UMFÍ að sinna málum
ungmenna- og íþróttaféiaga þegar
öil íþróttafélög í landinu eru með
aöild að ÍSÍ?
„íþróttastarfiö innan Ungmennafélags
íslands er með töluvert öðrum hætti en hjá
ÍSÍ. Hjá okkur hefur verið lögð meiri áhersla
á að allir séu með, eins og þekkist á
Landsmótunum. Við byggjum meira upp á
uppeldisstarfinu á meðan ÍSÍ sér um
keppnisiþróttirnar og afreksfólkið. Því er
hins vegar ekki að neita að við eigum margt
sameiginlegt með ÍSÍ og á mörgum sviðum
vinnum við mjög náið saman."
Umsókn ÍBR
Ungmennafélagshreyfingin er þekkt
fyrir að vera landsbyggðahreyfing
og því vakti það talsveröa athygli
innan hreyfingarinnar þegar ÍBR
starfsemin ekki eftir að breytast. Auðvitað
þarf að breyta ýmsum atriðum eins og til
dæmis jafnræði milli sambandsaðila og svo
framvegis en aðalmálið er hvort ÍBR sé
tilbúið að koma inn á okkar forsendum og
þá aðlaga starfsemi sína að þeim
verkefnum sem ungmennafélagshreyfingin
vinnur að. Ég held að það geti verið mjög
áhugavert að fá (BR sem sambandsaðila
sótti um aðild að UMFÍ. En hvað
finnst Sæmundi um að fá öll
Reykjavíkurfélögin inn í hreyfing-
una?
„Við verðum auðvitað að gera okkur
grein fyrir þvi að ungmennafélagshreyfingin
er með sínar sterku rætur út um
landsbyggðina. Stjórnarmenn koma alls
staðar að úr ungmennafélagshreyfingunni
og við litum á það sem styrk hreyfingarinnar.
Það má samt ekki líta framhjá því að UMFÍ
hefur lika mikinn styrk hérna á
höfuðborgarsvæðinu þar sem UMSK og
Umf. Fjölnir eru bæði mjög öflug. Innan
Fjölnis og félaganna innan UMSK taka
félagarnir virkan þátt i starfi UMFÍ og það er
það sem skiptir öllu þegar málefni ÍBR eru
skoðuð. Ef íþróttabandalag Reykjavíkur
hefur áhuga á að koma inn í ungmenna-
félagshreyfinguna á forsendum hennar þá á
UMFÍ en það þarf auðvitað að skoða þessi
mál vel og svo er það þing UMFÍ sem tekur
afstöðu til málsins að lokum."
Áhugamál
Sæmundur Runólfsson á sér mörg
áhugamál þrátt fyrir að mikill timi fari i starfið
hjá UMFÍ. Hann er duglegur að stunda
útivist og segir það mikilvægt að halda sér í
góðu formi. Sæmundur æfir körfubolta
tvisvar í viku með félögum sínum. En á
sínum yngri árum lék hann til dæmis
knattspyrnu. En aðaláhugmál Sæmundar
verður að teljast UMFf þar sem mikill tími fer
í ferðalög og fundi á vegum hreyfingarinnar.
Hann sér samt ekki eftir þeim tíma og segist
hæst ánægður með starfið sem hann hefur í
dag.
Sæmunc
körfubolt
ur ræktar líkama sinn meö því aö æfa
3 tvisvar í viku. Hann segir það
mikilvæþt að halda sér í góöu formi.
Texti: Jóhann Ingi
Myndir: Jóhann Ingi
17